Vill stýrivexti niður í fjögur prósent Sólmundur Hólm Sólmundarson skrifar 4. júní 2009 09:39 Pétur H. Blöndal vill stýrivexti niður í 4-5 prósent. Mynd/ Stefán
Pétur H. Blöndal, þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir í samtali fréttastofu stýrivaxtaákvörðun Seðlabankans mikil vonbrigði. Fyrirtækin komist ekki í gang og kostnaður ríkisins af vöxtum jöklabréfa aukist. „Ég var að vona að þetta myndi verða að minnsta kosti tveggja prósenta lækkun," segir Pétur Blöndal um stýrivaxtaákvörðun Seðlabankans sem í dag lækkaði stýrivexti úr þrettán prósentum niður í tólf. „Þekkjandi mína menn, vitandi hvernig þeir hugsa þá bjóst ég við meiri lækkun," segir Pétur sem vill sjá stýrivexti fara niður í 4-5 prósent. „Verðbólga verður undir þeim mörkum. Ég sé enga verðbólguhvata neinsstaðar, það er allt í frosti," segir Pétur. Hann segir Íslendinga búa við afar háa raunvexti á meðan vextir í í heiminum hafa lækkað umtalsvert. „Libor vextir á evru hafa verið að lækka úr 4-5% í nóvember niður í minna en eitt prósent í mars. Þannig að vaxtamunurinn er gríðarlegur." Pétur segir ákvörðun Seðlabankans hindra uppbyggingu atvínnulífisins, fyrirtækin komast því ekki í gang sem og þar með aukist atvinnuleysi. „Það er harmleikur fyrir viðkomandi fjölskyldur og í raun alla Íslendinga." Íslenska ríkið greiðir vexti af jöklabréfunum svokölluðu. Þá vexti má flytja úr landi. Pétur bendir að kostnaður ríkisins vegna þessa sé mun meiri en hann væri ef stýrivextir væru lægri. „Jöklabréfin eru um 700 milljarðar, þannig að við erum að tala um að vextir séu kringum sjötíu milljarðar. Það er gjaldeyrir sem ríkið þarf að kaupa og það þrýstir gengi krónunnar niður og veldur verðbólgu," segir Pétur. Hann segir að ef vextir hefðu verið lækkaðir hefðu væntanlega einhver jöklabréf farið út, en hinsvegar sé ekki um auðugan garð að gresja gagnvart ávöxtun erlendis. „Ég veit ekki hvaða hagfræðikenningum þeir eru að beita. Ég held að peningastefnunefnd seðlabankans hafi ekki tekið alla þætti inn í dæmið. Ekki einu sinni tekið inn alla þætti sem hafa áhrif á verðbólgu. Svo finnst mér að það verði að taka inn fleiri hagstærðir en verðbólgu með í reikninginn."
Tengdar fréttir Stýrivextir úr 13 í 12 prósent Seðlabanki Íslands tilkynnti nú fyrir stundu stýrivaxtalækkun upp á eitt prósentustig, úr 13 prósentum í 12. Ákvörðun bankans verður rökstudd á blaðamannafundi klukkan 11. 4. júní 2009 09:00 Ákvörðun Seðlabankans gríðarleg vonbrigði Stýrivaxtaákvörðun peningastefnunefndar Seðlabankans er gríðarleg vonbrigði, segir Jón Steindór Valdimarsson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins. Hann hafði vonast að lækkunin yrði meiri. 4. júní 2009 09:25 Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Erlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent Marius látinn laus Erlent „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Innlent Fleiri fréttir „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi Sjá meira
Stýrivextir úr 13 í 12 prósent Seðlabanki Íslands tilkynnti nú fyrir stundu stýrivaxtalækkun upp á eitt prósentustig, úr 13 prósentum í 12. Ákvörðun bankans verður rökstudd á blaðamannafundi klukkan 11. 4. júní 2009 09:00
Ákvörðun Seðlabankans gríðarleg vonbrigði Stýrivaxtaákvörðun peningastefnunefndar Seðlabankans er gríðarleg vonbrigði, segir Jón Steindór Valdimarsson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins. Hann hafði vonast að lækkunin yrði meiri. 4. júní 2009 09:25