Rökkur lætur á sér kræla 27. nóvember 2009 05:00 Rökkur Nuno da Palma og Bóas Kristjánsson hafa sett á laggirnar framleiðslufyrirtækið Rökkur Reykjavík. fréttablaðið/anton brink
Rökkur Reykjavík er nýtt framleiðslufyrirtæki sem sérhæfir sig í tónlistar- og tískuviðburðum. Markmiðið þess er að skapa betri vettvang fyrir íslenska hönnuði. Rökkur Reykjavík er nýtt framleiðslufyrirtæki sem mun sérshæfa sig í tísku- og tónlistarviðburðum. Að fyrirtækinu standa fatahönnuðurinn Bóas Kristjánsson og plötusnúðurinn Nuno da Palma, auk þess sem Arna Sigrún Haraldsdóttir, fatahönnuður, og grafíski hönnuðurinn Gunnar Þorvalds koma einnig að verkefninu. „Hugmyndin varð til á tískuvikunni í París í sumar, þar sem ég var að sýna hönnun mína og Nuno var að spila. Okkur langaði til að skapa sambærilegan vettvang fyrir íslenska tísku og hönnun og ætlum að nota tónlistina sem einskonar aðdráttarafl til að laða fólk að," segir Bóas um tilurð Rökkurs. „Það er kannski hægt að líta á þetta sem hjónaband milli hönnunar og tónlistar," bætir Nuno við. Eitt af markmiðum Rökkurs er að standa að ýsmum tískutengdum viðburðum auk þess sem hugmyndir eru um að koma á laggirnar árlegri tískuviku þar sem tónlist og tísku verður blandað saman og skapa þannig einstakan viðburð sem dregur að fjölda gesta. Bóas og Nuno segja engan sérhæfðan hönnunarmiðil vera hér á landi og því vanti vettvang fyrir hönnuði til að koma sér á framfæri. „Íslensk tónlist hefur fengið að vaxa og dafna síðastliðin áratug og okkur finnst hönnun eiga einnig að fá tækifæri til að þroskast og vaxa. Hér er mikið af hæfileikaríkum hönnuðum og hugmyndin er að reyna að skapa samstarf þar á milli og byggja upp þennan iðnað með sameiginlegu átaki," segir Bóas. Aðspurður hvort erfitt sé að laða erlenda aðila hingað til lands segir Nuno svo ekki vera. „Fólk er almennt mjög forvitið um Ísland. Í gegnum tíðina hef ég verið mikið í sambandi við erlenda tónlistamenn og þeir hafa jafnvel verið til í að lækka launakröfur sínar til þess að geta tekið að sér verkefni hér. Þannig það ætti ekki að vera vandamál að lokka fólk hingað." Sérstakt kynningarteiti verður á skemmtistaðnum Austur þann 12. desember ásamt ljósmyndasýningu sem ber yfirskriftina Fashion Imagery: Native Eye. Þar verða sýnd verk eftir íslenska tískuljósmyndara sem hafa verið að gera það gott á erlendri grundu. -sm
Mest lesið „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Lífið Enginn venjulegur sjötugur maður Gagnrýni Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Lífið Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Lífið Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Lífið Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða Lífið Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Lífið „Pólitíkusar sem tala á þennan veg: Fokk jú“ Tónlist Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lífið „Þú getur ekki ráðist að mér þegar ég er að borða með ömmu minni“ Tónlist Fleiri fréttir Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir „Aldrei of seint að gera hlutina“ „Þetta skiptir okkur mjög miklu máli“ Einmanalegt áhugamál fjögurra íslenskra stráka Krónprinsessan inn og út af sjúkrahúsi „Við höfum oftar en einu sinni fundið hann í fjöru“ „Núna stjórna stelpur landinu og strákar klippa hár“ Uppgötvuð á götum Barcelona Hvað veistu um... Snæfellsnes? Leikritið eigi sérstaklega erindi nú Manst þú eftir þessum sígildu sumarleikjum? Sjá meira