Glæsilegur Gunnar 5. október 2009 04:30 Gunnar Þórðarson í Borgarleikhúsinu Föstudagskvöldið 2. október Gestir: Svavar Knútur Kristinsson og hljómsveitin Buff HHHH Vel heppnaðir tónleikar með einum af meisturum íslenskrar tónlistar.
Lagasafn Gunnars Þórðarsonar er svo veglegt að hægur leikur yrði að fylla tveggja eða þriggja kvölda tónleikadagskrá með eintómum risasmellum. Sú varð ekki raunin á frábærum tónleikum fyrir fullu Borgarleikhúsi á föstudagskvöldið, heldur var dagskránni skipt smekklega milli hittara, minna þekktra laga og glænýrra. Þessi blanda virkaði þrælvel. Fyrr á árinu hélt Gunnar sína fyrstu sólótónleika á ferlinum. Aðdáendur hafa misst af miklu síðustu 45 árin því eftirminnilegasti hluti tónleikanna á föstudag var í fyrstu lögunum, þegar Gunnar stóð einn á sviðinu með gítarinn. Hvort sem var í síðHljómalaginu Við saman (þar sem Gunnar gítarpikkaði röddunina með skemmtilegum árangri), Vesturgötu, hinu nýja og gullfallega Annar en ég er eða Lífsgleðinni var þessi kafli skemmtilega innilegur og spjall Gunnars milli laga nokkuð fyndið og áhugavert. Svavar Knútur stóð sig vel í gestahlutverki. Lék á gítar og söng með Gunnari í þremur lögum og náði Jensensískum hæðum Ástarsælu og Þú og ég. Hljómsveitin, skipuð þeim Jóhanni Ásmundssyni á bassa, Þóri Úlfarssyni á píanó og Ágeiri Óskarssyni á trommur, gerði allt rétt og rúmlega það. Buffið er eins og skapað fyrir svona uppákomur. Raddirnar voru frábærar í Harðsnúnu Hönnu og stríðnislegri útgáfu af Fjólublátt ljós við barinn, auk nýs Íslandslags sem sungið var án undirleiks við mikinn fögnuð viðstaddra. Eftir að áhorfendur höfðu tekið hressilega undir í opinbera lokalaginu, Bláu augun þín, fengu þeir tvö af eftirlætislögum Gunnars (að eigin sögn), Vetrarsól og Þitt fyrsta bros, í tvöföldu uppklappi. Heilt á litið var um að ræða vel heppnaða tónleika með einum af meisturum íslenskrar tónlistar. Það er sérstakt ánægjuefni að einstakur katalógurinn sé viðraður með þessum hætti. Kjartan Guðmundsson
Mest lesið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Lífið Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Ólafur Darri herjar á ringlaðan Jamie Dornan Bíó og sjónvarp Svana á tímamótum og selur slotið Lífið Fleiri fréttir Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Sjá meira