Verði áminntur fyrir að segja ólykt af Lýsi 30. maí 2009 05:00 Deilt hefur verið um fiskþurrkun Lýsis í Þorlákshöfn um árabil.MYNd/GKS
Lögmaður Lýsis, Sigurbjörn Magnússon, krefst þess að skipulags- og byggingarfulltrúi Ölfuss dragi ummæli um fyrirtækið til baka eða verði áminntur ella. Lýsi rekur fiskþurrkunarverksmiðju í Þorlákshöfn. Bæjaryfirvöld í Ölfusi kvarta undan ólykt af starfseminni en neita fyrirtækinu um byggingu þvottaturna sem eiga að draga úr lyktarmengun. Heilbrigðiseftirlit Suðurlands hefur veitt Lýsi átta ára starfsleyfi í Þorlákshöfn. Bæjarstjórnin lýsir fullum stuðningi við störf skipulagsfulltrúans „við úrlausn þessa vandasama máls,“ eins og segir í bókun vegna kröfu Lýsis. Ummælin umdeildu lét skipulagsfulltrúinn falla í útvarpsviðtali 17. apríl síðastliðinn. Lýsti hann ólyktinni af fiskþurrkuninni þannig að nánast væri ólíft í Þorlákshöfn. Sagði hann einnig að niðurstaða umhverfisráðuneytisins varðandi starfsleyfi væri ekki í samræmi við skipulag. Í bréfi lögmanns Lýsis til skipulagsfulltrúans sjálfs segir að dragi hann ekki ummælin til baka áskilji Lýsi sér rétt til að höfða skaðabótamál á hendur honum til að fá ummælin dæmd ómerk og fá hann dæmdan til að greiða skaða- og miskabætur. „Við erum í viðræðum við bæjarstjórann og aðra fulltrúa Ölfuss um að ná sátt í málinu og ég vil ekki tjá mig um þessi mál á meðan,“ segir lögmaður Lýsis spurður um næstu skref.- gar
Mest lesið „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Innlent Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Mótorhjól og bíll skullu saman Innlent Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar Innlent Fleiri fréttir Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China hefur sölu á flugmiðum frá Íslandi til Kína Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Sjá meira