Innlent

Ákvarðanafælni í borgarstjórn

Borgarstjórn þorir ekki að taka ákvarðanir og þess vegna er allt stopp segja verktakar sem vilja framkvæma. Þeir þora þó ekki að koma fram af hræðslu við að lenda á svörtum lista hjá borginni.

Verktakar og starfsmenn fasteignafélaga víðs vegar um borgina eru reiðir Reykjavíkurborg sem þeir segja erfiða í samstarfi. Víða séu reitir þar sem menn vilja hefja framkvæmdir en borgin neitar þeim um leyfi nema farið sé í einu og öllu eftir þeirra hugmyndum sem oft henta ekki lóðareigendum. Mikill fjöldi hefur haft samband við fréttastofu vegna málsins að undanförnu en fáir þora þó að tjá sig opinberlega vegna hræðslu við að lenda á svörtum lista hjá borginni. Aðrir sýna þó skilning, segir Sveinn Björnsson, forstjóri Novator properties.

Novator properties, sem 69% er í eigu þrotabús Samson eignarhaldsfélags, vinnur nú aðallega að tveimur reitum í borginni, annars vegar að Listaháskólanum og síðan Barónsreitur. Björn viðurkennir þó að hlutirnir mættu ganga hraðar fyrir sig.

„Þetta hefur þvælst fyrir í ferlinu,“ segir Svein. Hann segir þó ólíkt mörgum verktökum sem hringt hafa inn vegna málsins og ekki fá fund með borginni, viðmótið hafa verið ágætt í þeirra garð.

Sveinn segir að pólitískt séð séu borgarfulltrúar hræddir við að taka ákvarðanir.

Og ekki að ástæðulausu enda hafa þrýstihópar sem vilja vernda ákveðna borgarmynd haft sitt að segja um gang mála. Atvinnuleysi á Íslandi nálgast hins vegar 10%. Ef framkvæmdir færu í gang á mörgum þessara staða þýddi það atvinnu fyrir stóran hóp manna, verkfræðinga, byggingafræðinga, arkitekta svo ekki sé talað um alla iðnaðarmennina.

Björn segir mikilvægt að verktakar sýni skilning og komi til móts við borgina enda hafi hún margt til síns máls. Mikilvægt sé hins vegar einnig að ferlum sé hraðað innan borgarinnar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×