Bankastjórastöður ríkisbankanna auglýstar 13. janúar 2009 18:30
Stöður bankastjóra ríkisbankanna verða auglýstar lausar til umsóknar á næstu dögum. Þetta var ákveðið í dag. Samkvæmt heimildum fréttastofunnar funduðu Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra og Árni M. Matthiesen fjármálaráðherra með formönnum bankaráða Landsbanka, Glitnis og Kaupþings í dag. Á fundinum mun hafa verið farið yfir starfsmannamál bankanna og ráðherrarnir tilkynnt formönnum bankaráðanna að það væri vilji ríkisvaldsins, sem eiganda bankanna, að stöður bankastjóranna yrðu auglýstar lausar til umsóknar. Bankastjórarnir þrír þau Elín Sigfúsdóttir í Landsbankanum, Birna Einarsdóttir í Glitni og Finnur Sveinbjörnsson hjá Kaupþingi, voru öll ráðin af bráðabirgðastjórnum sem skipaðar voru yfir bankanna fljótlega eftir hrun bankakerfisins. En umboð þeirra var á sínum tíma takmarkað. Viðskiptaráðherra hefur áður lýst því yfir í þinginu að hann teldi eðlilegt að auglýsa stöðurnar og nú hefur hann ásamt fjármálaráðherra, sem fer með hlutabréf ríkisins í bönkunum, ákveðið að það verði gert. Og nú rétt í þessu sagðist Finnur Sveinbjörnsson, í samtali við fréttastofu, ekki hafa heyrt af því að auglýsa ætti stöðu bankastjóra. Það kæmi honum þó ekki sérstaklega á óvart og hann ætli sér að sækja um starf bankastjóra Kaupþings. Í yfirlýsingu frá Elínu Sigfúsdóttur segir að hún muni ekki sækja um stöðuna við Landsbankann, enda alltaf litið svo á að starfið væri tímabundið. Ekki hefur náðst í Birnu Einarsdóttir.
Tengdar fréttir Elín sækir ekki um sem bankastjóri í Nýja Landsbankanum Elín Sigfúsdóttir, núverandi bankastjóri Nýja Landsbankans, ætlar ekki að sækja um stöðuna sem bankaráð bankans ákvað í dag að auglýsa lausa til umsóknar. Auglýsingin mun birtast á næstu dögum en Elín mun gegna stöðunni þar til nýr bankastjóri hefur verið ráðinn. Nánar verður fjallað um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2. 13. janúar 2009 18:18 Mest lesið Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Bakslag í vorkomu: Snjóföl og hálka í næstu viku Veður Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Innlent Bilið á milli turnanna breikkar Innlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Erlent Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Innlent Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Innlent Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Innlent Fleiri fréttir Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Sjá meira
Elín sækir ekki um sem bankastjóri í Nýja Landsbankanum Elín Sigfúsdóttir, núverandi bankastjóri Nýja Landsbankans, ætlar ekki að sækja um stöðuna sem bankaráð bankans ákvað í dag að auglýsa lausa til umsóknar. Auglýsingin mun birtast á næstu dögum en Elín mun gegna stöðunni þar til nýr bankastjóri hefur verið ráðinn. Nánar verður fjallað um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2. 13. janúar 2009 18:18