Blæs lífi í laskaðan markað 28. nóvember 2009 01:00 Gylfi Magnússon Viðskiptaráðherra hefur ágæta tilfinningu fyrir skráningu fyrirtækja sem bankarnir hafa tekið yfir. Fréttablaðið/GVA
Skráning fyrirtækja sem bankarnir hafa tekið yfir að öllu leyti eða að hluta getur verið ágæt lausn, að sögn Gylfa Magnússonar, efnahags- og viðskiptaráðherra. Fréttablaðið greindi frá því í gær að viðræður hafi átt sér stað á milli Kauphallarinnar og bankanna um skráningu fyrirtækjanna og hugnist bankastjórum bankanna þriggja það. Svo kann að fara að sjö fyrirtæki sem þeir hafa tekið yfir verði sett á markað á næsta ári. „Ég er alveg hlynntur þessu,“ segir Gylfi og bendir á að markaðsvæðing fyrirtækjanna sé mikilvægur hluti af því að endurvekja hlutabréfamarkað hér og koma heilbrigðum fjármálamarkaði í gang á ný. „Hann hefur verið afar laskaður, svo ekki sé dýpra í árinni tekið. Ég myndi fagna því ef þetta verður hægt að gera í einhverjum mæli og tel reyndar að þetta geti verið ágæt leið í ýmsum tilvikum. Það hentar ekki mjög smáum fyrirtækjum en getur verið gott fyrir stærri rekstrarfélög,“ segir hann. Spurður hvort tímabært sé að skrá fyrirtæki á markað svo stuttu eftir fjármálahrunið segir Gylfi svo vera: „Ég hef trú á því ef vel er að málum staðið. Verið er að gera ýmsar breytingar á regluverkinu, bæði um fjármálamarkaði og hlutafélagalöggjöfina. Það ætti að hjálpa til. Ég hef ágæta tilfinningu fyrir því að þetta geti gengið.“ - jab
Mest lesið Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Innlent Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais Innlent Lokuðu flugbraut vegna dróna Innlent „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Innlent Hafnarfjörður hafði betur gegn Jóni Rúnari Innlent „Þeir sem taka pening frá veðmálafyrirtækjum ættu að líta í eigin barm“ Innlent Sænskur Evrópuþingmaður kærir danskan kollega til lögreglu Erlent Gagnrýnin byggð á misskilningi Innlent McConnell birtir mynd af sér á spítala Erlent Byrjaði skyndilega að taka konuna hálstaki og hélt í 40 sekúndur Innlent Fleiri fréttir „Ef þú vilt græða þá ferðu í að selja loftkælingu í Evrópu“ „Þeir sem taka pening frá veðmálafyrirtækjum ættu að líta í eigin barm“ Byrjaði skyndilega að taka konuna hálstaki og hélt í 40 sekúndur Allt lið kallað út vegna elds í vélarrúmi „Það varð uppi fótur og fit“ Endurreisn mýranna megi ekki bíða lengur Olíuverð, trjáþjófnaður og áhrifagjörn ungmenni Hafnarfjörður hafði betur gegn Jóni Rúnari „Elliðaárnar eru bakkafullar af göngulaxi“ Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Brotist inn í Fíladelfíuna og gítar stolið Gæti orðið hálf milljón árið 2037 Gagnrýnin byggð á misskilningi Innbrot í kirkju á höfuðborgarsvæðinu Lokuðu flugbraut vegna dróna Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Sektuðu í grennd við Símamótið „Við erum að svara kalli tímans“ Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Á fimmta tug barna vilja sækja skóla í Grindavík „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Hvalur skaut up kollinum í Hólmavík Mælirinn segir 33 gráður „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgar gríðarlega Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Brotist inn og peningaskápur tekinn Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Sjá meira