Innlent

Alvarlegt umferðarslys á Hringbraut

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Sjúkrabíll var kallaður á vettvang. Mynd/ Daníel.
Sjúkrabíll var kallaður á vettvang. Mynd/ Daníel.
Mjög alvarlegt vélhjólaslys varð á Hringbraut, skammt frá Þjóðarbókhlöðu, á níunda tímanum í kvöld. Slysið varð með þeim hætti að vélhjól og bifreið rákust saman. Vélhjólið var á leið austur Hringbrautina en bifreiðin var á leið í vestur og hugðist ökumaður bifreiðarinnar beygja í suðurátt þegar slysið varð. Fréttastofa segir nánar frá málinu í kvöld eða á morgun.














Fleiri fréttir

Sjá meira


×