Íslensk þjóð á amerískum kúr 27. október 2009 02:00 Ford og FM Belfast Blaðamaður Telegraph á eina skemmtilegustu umfjöllunina um Airwawes-hátíðina en hann segir FM Belfast vera stjörnu hátíðarinnar og að Íslendingar hafi þrifist á innflutningi á pallbílum frá Ford.Fréttablaðið/Hörður Sveinsson
Dómar um Airwaves halda áfram að birtast á erlendum fréttaveitum en fjöldi erlendra blaðamanna dvaldist hér á landi og tók út íslensku tónlistarsenuna. Breska blaðið Telegraph státar eflaust af skemmtilegustu umfjölluninni þar sem blaðamaðurinn Huw Nesbitt er undrandi á amerískum áhrifum í Reykjavík. Nefnir hann sem dæmi að í Reykjavík sé til að mynda fáránlegur fjöldi klukkuverslana og amerískra veitingastaða og við enda Laugavegarins sé meira að segja Fíladelfíusöfnuður. Nesbitt hefur augljóslega ekki haft hugmynd um að McDonald‘s væri að fara að loka. Þá kveðst hann hafa heimildir fyrir því að Íslendingar hafi þrifist á bandarísku sjónvarpsefni, pylsum og innflutningi á dýrum pallbílum frá Ford þegar góðærið stóð sem hæst. „Þeir fluttu þá inn eins og enginn væri morgundagurinn. En svo kom morgundagurinn og landið varð gjaldþrota.“ En Nesbitt notar ekki bara greinina til að hæðast örlítið að gestgjöfum sínum því hann hrósar íslenskum tónlistarmönnum í hástert. Nefnir hann sérstaklega tónleika Hjaltalín í Fríkirkjunni og For a Minor Reflection í Iðnó þar sem þakið hafi hreinlega rifnað af húsinu. Stjarna hátíðarinnar sé hins vegar FM Belfast, sem Nesbitt segir hafa farið á kostum á Nasa. Þeir tónleika hafi staðið upp úr á annars ágætri hátíð að mati blaðamannsins.- fgg
Mest lesið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Ólafur Darri herjar á ringlaðan Jamie Dornan Bíó og sjónvarp Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Lífið Hozier skemmti sér á almyrkvahátíð Tónlist Svana á tímamótum og selur slotið Lífið Fleiri fréttir Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Sjá meira