Réttir verða endurteknar á næsta ári 29. september 2009 02:00 eldar ástþórsson Eldar er einn af skipuleggjendum tónleikaraðarinnar Rétta.fréttablaðið/arnþór
Tónleikaröðin Réttir sem var haldin um síðustu helgi verður aftur í Reykjavík á næsta ári, að sögn Eldars Ástþórssonar, eins af skipuleggjendum viðburðarins. „Þetta fór fram úr okkar björtustu vonum og gekk ótrúlega vel. Þetta voru yfir hundrað tónleikar og það var fullt út úr dyrum á vel flestum. Ég held að það sé ljóst af viðbrögðum hátíðarinnar í ár að við munum endurtaka leikinn,“ segir Eldar. „Við ætluðum fyrst að hafa þetta lítið í sniðum en svo vatt þetta upp á sig og það bættust við fleiri staðir og fleiri vildu vera með. Þrátt fyrir lítinn fyrirvara og enga styrki sem við gátum reitt okkur á tókst þetta feikivel.“ Iceland Airwaves-tónlistarhátíðin verður haldin 14. til 18. október og því er afar stutt á milli þessara tveggja svipuðu hátíða. Eldar vill ekki meina að þær skarist enda hafi miðasala á Airwaves gengið sérlega vel. „Það virðist vera bæði markaður og stemning fyrir því að hafa fyrirbæri eins og Réttir í september. Eini mínusinn er að það er stutt á milli hátíðanna en við sem stöndum að Réttum höfðum aldrei áhyggjur af því að þetta myndi bitna á öðrum viðburðum haustsins eða vetrarins, til að mynda Airwaves-hátíðinni. Við vonuðumst til að þetta myndi ganga vel upp bæði fyrir okkur sem höldum Réttir og þá sem halda Airwaves og það tókst.“ Vegna takmarkaðs fjármagns fengu erlendu hljómsveitirnar sem komu fram á Réttum lítið greitt. „Við vorum að hjálpa þeim með gistingu en greiddum ekki mikil laun. Það hefði aldrei gengið upp.“ - fb
Mest lesið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Þórdís Elva er gengin út Lífið Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Svana á tímamótum og selur slotið Lífið Fleiri fréttir Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Sjá meira