Siv vill ráðast í byggingu nýs Landspítala Jón Hákon Halldórsson skrifar 19. maí 2009 20:43 Siv Friðleifsdóttir alþingismaður telur að hagræða megi um 3 milljarða á ári með nýju húsnæði undir Landspítala. Mynd/ Rósa.
Það er afar brýnt að ráðist verði í hönnun og byggingu nýs Landspítala á næstunni, segir Siv Friðleifsdóttir, fulltrúi Framsóknaflokksins í heilbrigðisnefnd Alþingis. Siv lagði fram spurningu til heilbrigðisráðherra á Alþingi í dag um hvort undirbúningi að verkefninu yrði haldið áfram. Hún bíður nú skriflegs svars frá ráðherra. „Hann var með jákvæðar yfirlýsingar fyrir kosningar og sagði að ef hann fengi einhverju um það ráðið að þá yrði haldið áfram með verkefnið. Og ég vildi vita hvort að þær yfirlýsingar stæðust ekki," segir Siv. Hún segist sjálf vera fylgjandi verkefninu vegna þess að með nýjum spítala verði væntanlega hægt að hagræða um þrjá milljarða á ári. Auk þess séu gömlu byggingarnar, sem hýsa spítalann í dag, úr sér gengnar miðað við nútímakröfur. Siv segist eiga von á því að báðir ríkisstjórnarflokkarnir séu fylgjandi þessari framkvæmd því að hún sé bæði arðsöm og atvinnuskapandi. Siv bendir þó á að vegna efnahagsástandsins verði að gæta að ítrustu hagvæmni um leið og hvergi sé slakað á gæðakröfum. Þá verði að skipta verkefninu upp í áfanga. Byrja megi á nýju húsnæði undir bráðastarfsemi. Siv bendir á að hugmyndir hafi verið uppi um að lífeyrissjóðirnir fjármagni framkvæmdina. Sjálfri finnst henni að sú hugmynd hljóti að koma til greina. „Af því að þá myndi ríkið skulda lífeyrissjóðunum og ríkið er góður skuldari. Þannig að þeir ættu að geta treyst því að fá það greitt til baka. Þannig að mér finnst það eðlilegt og ég skil það að ráðherra skuli skoða þann möguleika," segir Siv. Siv bendir á að fyrrverandi heilbrigðisráðherrar hafi verið mjög jákvæðir gagnvart þessari framkvæmd og hún vonist til að Ögmundur haldi áfram að undirbúa hana. „Ég veit líka að nýr forstjóri, Hulda, hefur lagt sig fram um að undirbúa bygginguna til þess að hún geti verið ódýr en samt staðist alla gæðastaðla og allar kröfur," segir Siv.
Mest lesið „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Innlent „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Innlent Útlit fyrir að íslensk stjórnvöld brjóti gegn alþjóðasamningum Innlent Kennarasambandið mismunaði konu Innlent Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Innlent Samningur um Ísafjörð tryggir rekstur Q200-véla Icelandair Innlent Aðstoðarskólastjóri Stapaskóla biður nærsamfélagið um hjálp Innlent Flúði heimili sitt eftir að hafa hótað stofnun Innlent „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Innlent „Áfall fyrir starfsfólk“ Innlent Fleiri fréttir „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Samningur um Ísafjörð tryggir rekstur Q200-véla Icelandair Kennarasambandið mismunaði konu Útlit fyrir að íslensk stjórnvöld brjóti gegn alþjóðasamningum „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Meitlarnir komust loks í forgang eftir stefnubreytingu Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Ekki síður í vandræðum með bóklega kennslu Áhrif smyglmáls og hugsanleg brot stjórnvalda á alþjóðlegum skuldbindingum Flúði heimili sitt eftir að hafa hótað stofnun MMS ekki kunnugt um neinar breytingar á einkunnagjöf Aðstoðarskólastjóri Stapaskóla biður nærsamfélagið um hjálp Félag Ragnars Freys telur uppsögn hans ólögmæta Skálmöld stígur ölduna í héraðsdómi „Áfall fyrir starfsfólk“ Nefndin sammála Ólafi Ragnari um skipun forsetaritara Hækjubræður á þingi Framsókn kynnti tillögu að þjóðarsátt Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Sprengingin í Fóðurblöndunni enn til rannsóknar hjá lögreglu og Vinnueftirlitinu Bein útsending: Beina sjónum að leit og björgun á norðurslóðum „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Varnarsigur segir formaður bæjarráðs Ísafjarðar Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir lágu ófundnir í viku eða lengur 37 prósent landsmanna fylgjandi innheimtu veggjalda Ekkert verður af bankasamruna og Ísafjarðarflugið lifir „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Svavar Sigmundsson er látinn Líkamsárás, húsbrot og eignaspjöll Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Sjá meira