Innlent

Menntamálaráðherra: Staða Baldurs skoðuð eftir helgi

Staða Baldurs Guðlaugssonar sem er ráðuneytisstjóri menntamálaráðuneytisins, verður skoðuð eftir helgi að sögn Katrínar Jakobsdóttur, menntamálaráðherra, þegar við hana var rætt fyrir utan stjórnarráðið í hádeginu.

Baldur sætir nú rannsókn sérstaks saksóknara eftir að hafa selt hluti sem hann átti í Landsbankanum mánuði fyrir hrun.

Meðal þess sem er rannsakað er hvort hann hafi búið yfir innherjaupplýsingum um stöðu Landsbankans fyrir hrunið en sjálfur sat hann fund með Alistair Darling þar sem staða bankans var sérstaklega rædd. Þá var hann ráðuneytisstjóri fjármálaráðuneytisins.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×