Bjarkareftirherma á íslenskri grínhátíð 24. október 2009 03:30 Bjarni Haukur skipuleggur fyrstu grínhátíð Íslands, Reykjavík Comedy Festival, en meðal þeirra sem troða upp eru Bretinn Phil Nichol og hinn sænski Björn Gustavsson. „
Hann tekur Björk, ég hef bara séð það á netinu og það er alveg hryllilega fyndið,“ segir Bjarni Haukur Þórsson, skipuleggjandi fyrstu grínhátíðar Íslands, Reykjavik Comedy Festival. Hátíðin verður í Loftkastalanum og hefst hinn 11. nóvember. Meðal þeirra sem þar troða upp er Bretinn Phil Nichol sem bregður sér í allra kvikinda líki og meðal þekktra persóna hans er hin íslenska Björk Guðmundsdóttir. Nichol er feykilega vinsæll í uppistandsheiminum og hefur verið aðalgestur á mörgum af stærstu uppistandshátíðum heims. Meðal annarra erlendra gesta er Björn Gustavsson sem Bjarni Haukur kýs að lýsa sem strákabandsútgáfu af Pétri Jóhanni. „Það er að segja, þeir eru örugglega ámóta vinsælir í sínum heimalöndum en stúlkurnar kikna í hnjánum þegar hann birtist á sviðinu. Hann er reyndar ungur, aðeins 22 ára,“ segir Bjarni en til gamans má geta að Björn þessi er meðal gesta í sjónarpsþætti Frímanns Gunnarssonar sem fjallað hefur verið um á síðum blaðsins. jöldi Íslendinga mun einnig troða upp á hátðinni. Hinir síkátu og eldhressu Kaffibrúsakarlar dusta rykið af gamanmálum sínum sem og Radíusbræðurnir Steinn Ármann og Davíð Þór. Þá verða nýstirnin í Mið-Íslandi einnig áberandi á hátíðinni, sem og margar af fyndnustu konum landsins; Helga Braga og Halldóra Geirharðs að ógleymdri Ólafíu Hrönn. Bjarni segir að jafnframt verði óreyndum grínistum einnig gefið tækifæri á svokölluðu „open mike“-kvöldi og svo verði sérstakt „X-rated“-kvöld en þar verði allt látið flakka. „Það verður svo sannarlega ekki fyrir viðkvæma og móðgunargjarna.“
Mest lesið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Ólafur Darri herjar á ringlaðan Jamie Dornan Bíó og sjónvarp Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Hozier skemmti sér á almyrkvahátíð Tónlist Engin stereótýpa: „Það breyttist allt þegar ég var í fimmta eða sjötta bekk“ Áskorun Efna til söfnunar í minningu Hennings Lífið Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Lífið Fleiri fréttir Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Ocasio-Cortez á lausu Sjá meira