Innlent

Stýrivaxtaákvörðun í dag

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands mun tilkynna um ákvörðun um stýrivexti í dag klukkan níu. Sjálf ákvörðunin verður kynnt með stuttri tilkynningu klukkan níu en klukkan ellefu kynnir nefndin rök sín fyrir ákvörðuninni. Bent hefur verið á að nefndin sé í erfiðri stöðu því aðilar vinnumarkaðarins og launþegahreyfingarnar hafa talað mjög fyrir umfangsmikilli lækkun stýrivaxta og gangi það ekki eftir gæti staðan í yfirstandandi kjarasamningaviðræðum versnað enn frekar en orðið er. Á hinn bóginn hefur Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn gefið það út að frekari stýrirvaxtalækkanir séu ekki í kortunum að óbreyttu en sjóðurinn á enn eftir að staðfesta annan hluta þess láns sem ákveðið var að veita Íslendingum í kjölfar bankahrunsins.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×