Prestar aðstoða við Jesúleikrit 14. nóvember 2009 07:00 Benedikt leikstýrir verkinu Jesús litli sem verður frumsýnt 21. nóvember. fréttablaðið/stefán „
Þetta er hið horfna en nýfundna Jólaguðspjall Leikfélags Reykjavíkur sem kemur í leitirnar eftir öll þessi ár,“ segir Benedikt Erlingsson leikstjóri, um verkið Jesús litla sem verður frumsýnt 21. nóvember. Æfingar eru í fullum gangi fyrir verkið, sem gæti vakið athygli fyrir hispurslaus efnistökin. Prestar og guðfræðingar hafa komið Benedikt og samstarfsfólki hans til hjálpar við Biblíurannsóknir en lengra ná áhrif þeirra ekki. „Yndislegir prestar hafa komið og hjálpað okkur og varpaði ljósi á Jesús þó að hann tali nú oftast mjög illa um guðfræðinga og kirkjan hafi ekkert einkaleyfi á Jesú frekar en skattstjórinn eða Fréttablaðið,“ segir Benedikt. „Vandinn með Jesú er að allir vilja eigna sér hann og þótt ég vildi gjarnan draga hann í minn flokk er það ekki hægt því hann er allra.“ Halldóra Geirharðsdóttir og Bergur Þór Ingólfsson leika í verkinu trúðana Úlfar og Barböru sem fá liðsinni frá söngdívunni Kristjönu Stefánsdóttur sem hefur fætt trúðinn Bellu. „Þau eru að segja söguna um hvernig ljósið kemur í heiminn, fæðingu Jesús litla. Við getum sagt að þetta sé sunnudagaleikhús fyrir fullorðna,“ segir Benedikt. Síðasta sýning trúðanna var Dauðasyndirnar sem hlaut sex tilnefningar til Grímunnar og verður fróðlegt að sjá hvort Jesús litli fær jafngóð viðbrögð. - fb
Mest lesið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Ólafur Darri herjar á ringlaðan Jamie Dornan Bíó og sjónvarp Þórdís Elva er gengin út Lífið Hozier skemmti sér á almyrkvahátíð Tónlist Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Efna til söfnunar í minningu Hennings Lífið Engin stereótýpa: „Það breyttist allt þegar ég var í fimmta eða sjötta bekk“ Áskorun Styrkir Minningarsjóð Bryndísar Klöru á Menningarnótt og skorar á aðra Tónlist Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Lífið Fleiri fréttir Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Ocasio-Cortez á lausu Frægustu mágar landsins Sjá meira