Innlent

Eldur hjá Norðlenska

Slökkviliðið á Akureyri kallað út að kjötvinnslu Norðlenska við Grímseyjargötu rétt fyrir klukkan sjö í kvöld. Eldboð barst stjórnstöð Öryggismiðstöðvar og þegar vaktmaður kom á staðinn var talsverður reykur í miðrými hússins.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu voru reykkafarar sendir inn í húsið og fundu þeir fljótlega upptök eldsins. Sag úr reykkofni hafði verið sett í plastbakka og hafði eldur læst sig í bakkann. Slökkvistarf tók skamma stund en húsið var reykræst á eftir. Litlar skemmdir urðu á húsnæðinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×