Innlent

Þjórsárvirkjanir: Svandís neitar að staðfesta breytingar á skipulagi

Svandís vill ekki breytingar á aðalskipulagi í Skeiða- og Gnjúpverjahreppi. Mynd/ Valgarður.
Svandís vill ekki breytingar á aðalskipulagi í Skeiða- og Gnjúpverjahreppi. Mynd/ Valgarður.
Svandís Svavarsdóttir, nýr umhverfisráðherra Vinstri grænna, neitar að staðfesta breytingar á aðalskipulagi Skeiða- og Gnúpverjahrepps. Í bréfi frá Umhverfisráðuneytinu til hreppsins, sem dagsett er 12. maí og fréttavefurinn Sunnlendingur.is hefur undir höndum, segir að ástæða synjunar ráðuneytisins sé að kynna þurfi breytinguna betur fyrir íbúum sveitarfélagsins.

Með ákvörðun sinni setji ráðherra virkjunaráform í neðri hluta Þjórsár í upplausn. Þá segir Sunnlendingur að forveri og flokksfélagi Svandísar í Umhverfisráðuneytinu, Kolbrún Halldórsdóttir, hafi tilkynnt sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps skömmu fyrir kosningar til Alþingis að hún væri að íhuga að staðfesta ekki breytinguna á aðalskipulaginu. Nú hafi nýr umhverfisráðherra stigið skrefinu lengra og neitað formlega.

Samkvæmt breytingunni á skipulaginu verður heimilt að tvískipta fyrirhugðum og samþykktum virkjunarframkvæmdum. Sunnlendingur segir að Skipulagsstofnun hafi gefið grænt ljós á breytinguna og mælt með því að ráðherra gerði slíkt hið sama, þrátt fyrir að kynningin á breytingunni hafi ekki verið nákvæmlega með þeim hætti sem fram kemur í lögunum. Þessu sé nýr umhverfisráðherra ósammála og í bréfinu sem sent hafi verið sveitarstjórn komi fram að ráðuneytið beini þeim tilmælum til Skipulagsstofnuinar að framvegis verði þess gætt að stofnunin víki ekki að neinu leyti frá kröfum um formlega kynningu á skipulagsbreytingum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×