Innlent

Nokkrir liggja undir grun

Kona kærði kynferðisbrot til lögreglunnar á Vestfjörðum á sunnudagsmorgun.

Talið er að meint brot hafi átt sér stað þá um nóttina.

Lögreglan á Vestfjörðum verst allra fregna af málinu en samkvæmt heimildum Fréttablaðsins er um nokkra meinta gerendur af erlendum uppruna að ræða.

Árásin mun hafa átt sér stað inni á skemmtistað.

Rannsóknarlögreglan á Vestfjörðum fer með málið en vill ekkert gefa upp um það að svo stöddu. Hún segir málið vera í rannsókn.- sh






Fleiri fréttir

Sjá meira


×