Um þúsund skjálftahús eru enn óbætt 14. maí 2009 05:00 Friðjón er langeygur eftir úrbótum á húsi sínu. Ekki liggur enn fyrir mat við viðgerðarkostnað. Tæplega ár er liðið frá Suðurlandsskjálftanum.fréttablaðið/stefán
Enn á eftir að bæta um eitt þúsund hús eftir Suðurlandsskjálftann sem varð í fyrra. Alls hefur verið tilkynnt um tjón á um 3.600 húsum og er búið að bæta 2.665 þeirra. Ásgeir Ásgeirsson, framkvæmdastjóri Viðlagatryggingar Íslands, segir verkefnið gríðarlega umfangsmikið. Um fjörutíu til fimmtíu manns hafi verið í því að meta hús frá skjálftanum sem varð 29. maí í fyrra. „Við erum ekki að biðja um mikið, aðeins að húsið verði gert íbúðarhæft á ný," segir Friðgeir Jónsson á Selfossi. Hús hans skemmdist mikið í Suðurlandsskjálftanum í fyrra, en hann hefur ekki fengið úrlausn sinna mála. Ekki liggur enn fyrir kostnaðarmat á viðgerðum. Við rannsókn kom í ljós að jarðvegurinn undir húsinu hefur sigið umtalsvert, sautján sentimetra þar sem mest er. Friðgeir segir að fyrsta mat hafi verið viðunandi en eftir að fleiri verkfræðingar skoðuðu húsið hafi það lækkað um tíu milljónir. „Nú vilja þeir bora holur í gólfplötuna, eina á hvern fermetra, og dæla steypu undir húsið. Það þýðir 170 holur," segir Friðgeir. Þar sem húsið hvílir ekki á réttum undirstöðum er allur burður úr lagi genginn og sést víða hvernig veggirnir hafa skekkst. Sólhýsi, sem hvílir á palli fyrir aftan hús, er að brotna frá húsinu og er stór sprunga á samskeytunum. Friðgeir segir málið hafa dregist fram úr hófi. „Við leggjum áherslu á að þetta klárist með hraði. Við þurfum að eiga við eldri mál, nýjar tilkynningar og svokölluð viðbótartjón, en þá hafa meiri skemmdir komið í ljós. Sú vinna mun líklega halda áfram næstu árin en við vonumst til að klára þessi 1.000 hús sem út af standa á næstu mánuðum," segir Ásgeir. Hann reiknar með að heildarkostnaður við verkefnið verði um 7,6 milljarðar, „jafnist á við eins og ein jarðgöng". Reikna megi með að matskostnaður sé um tíu prósent af tjónakostnaði
Mest lesið Hvað segja veðbankarnir? Innlent Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Lífið Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Innlent Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Innlent „Nú er komið að mér“ Erlent Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Innlent Fleiri fréttir Bjargað úr sjálfheldu í Reynisfjöru Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Hvað segja veðbankarnir? Valkyrjurnar halda blaðamannafund Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Aldrei komið í þvílíkt fjölmenni þar sem er svona mikil þögn Jákvæð „sjálfsmyndarkrísa“ í Brussel Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Líflátshótanir, þandar taugar og bein útsending frá norsku konungshöllinni Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Brynjar tekur við af Líf Sjá meira