Krían gerir Bolvíkinga rauðhærða 14. júlí 2009 04:00 kríuplága í bolungarvík Íbúum Bolungarvíkur, útivistarfólki og golfurum, er vart vært vegna grimmrar kríu sem herjar á bæjarbúa. „
Nei, hún er ekki að gera okkur gráhærð. Hún er að gera okkur rauðhærð. Hún heggur og þá rennur rautt,“ segir Halla Signý Kristjánsdóttir fjármálastjóri Bolungarvíkurkaupstaðar. Sérstætt vandamál er komið upp í Bolungarvík en svo mjög hefur kríuvarpi vaxið ásmegin við bæinn að stofnað hefur verið til sérstakra undirskriftalista þar sem farið er fram á að lausn finnist á vandamálinu. Samkvæmt upplýsingum frá Samkaup Úrval hafa nú þegar skráð sig á lista sem þar liggur frammi hátt í fjörutíu manns. „Þeir eru nokkrir sem hafa orðið fyrir árás kríunnar. Hún er hérna á sandinum, við golfvöllinn, og það er pirringur út af þessu. Það varð slys, maður á mótorhjóli fékk kríu framan í sig. En þetta er friðaður fugl og lítið sem við getum gert þó þetta mál hafi komið inn á borð til okkar,“ segir Halla Signý – en bæjaryfirvöld hafa leitað til Náttúrustofu Vestfjarða og spurt hvort finna megi á þessu vandamáli ásættanlega lausn. Halla Signý dregur ekki úr því að krían sé sérlega árásargjörn um þessar mundir – kolvitlaus nú þegar ungarnir eru að koma. Þarna er æðarvarp og krían sækir í það. Og skilyrði fyrir kríu virðast sérlega hagstæð því kríubyggðin hefur blásið út. „En við höfum ekkert á móti kríunni. Og bjóðum hana velkomna eins og aðra í Bolungarvík. En það væri gott ef hægt væri að finna lausn á á þessum sambúðarvanda en manni og kríu virðist ekki ætlað að vera nágrannar svo vel sé.“- jbg
Mest lesið Guðrún Ýr og Birnir í eina sæng Tónlist „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Lífið Pissaði fyrir framan fólk í sjö klukkutíma á dag Menning Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Lífið Rassaumhirða karla í sókn Lífið Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar Lífið Góð tannheilsa styður við betra líf: Kristjana Ben tannlæknir gefur ráð Lífið samstarf Áhugi leshringja svo mikill að Salka stækkar Lífið samstarf Þreföld útgáfa Drake: „Þessi gaur er stærsti rappari allra tíma“ Tónlist Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Lífið Fleiri fréttir Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir „Aldrei of seint að gera hlutina“ „Þetta skiptir okkur mjög miklu máli“ Sjá meira