Innundir hjá pólitíkusum 16. júlí 2009 06:00 Björn Ingi og Árni Johnsen á Bryggjuhátið Hrútavinafélagið Örvar er áhrifamikill félagsskapur. Þræðirnir liggja um allt stjórnkerfið en innan þeirra vébanda eru Árni, Össur Skarphéðinsson, Guðni Ágústsson, Illugi Gunnarsson, Björgvin G. Sigurðsson og Bjarni Harðarson.
Leyniþræðir um allt stjórnkerfið liggja til einhvers sérstæðasta og áhrifaríkasta félagsskapar Íslands. Hrútavinafélagið á Stokkseyri er tíu ára og fagnar því á Bryggjudögum á Stokkseyri um helgina. „Jújú, Hrútavinafélagið eru samtök sem eru áhrifamikil í íslenskri pólitík. En við erum fyrst og fremst gleðigjafar tilverunnar. Hrútavinafélagið leggur upp úr veraldlegum verðmætum en ekki síður andlegum. Hinum mjúku gildum. Þjóðlegri menningararfleifð til sjávar og sveita. Það mun bjarga okkur úr kreppunni,“ segir Björn Ingi Bjarnason forseti Hrútavinafélagsins Örvars á Suðurlandi. Hrútavinafélagið Örvar er tíu ára um þessar mundir. Fer fyrir breiðfylkingu heimamanna á Stokkseyri og fagnar áfanganum á Bryggjudögum sem standa yfir nú um helgina. Hrútavinirnir hafa aldrei farið í felur með pólitísk tengsl sem þeir leggja talsvert upp úr. Þannig er heiðursforseti félagsins Guðni Ágústsson fyrrverandi landbúnaðarráðherra og formaður Framsóknarflokksins. Hann lét ekki sitt eftir liggja og landbúnaðarráðuneytið styrkti félagsskapinn með ráðum og dáð, þó ef til vill hefði það staðið menntamálaráðuneytinu nær. „Jújú, við söknum Guðna úr landbúnaðarráðuneytinu sem styrkti Hrútavinafélagið á sínum tíma í þeim framkvæmdum sem við höfum verið í. Meðal annars í sambandi við sviðið sem er á Stokkseyrarbryggju núna: Rammgert tónleikasvið á bryggjunni.“ Stuðningur Hrútavinafélagsins við ýmsa stjórnmálamenn er þverpólitískur. Og víst er að stjórnmálamenn vilja vera í náðinni hjá hrútavinum en áhrif þeirra eru yfir allan vafa hafin. „Besta dæmið er þegar Guðni var kominn á dauðalistann á sínum tíma. Við mynduðum skjaldborg um Guðna sem komst í kjölfarið til æðstu metorða.“ Björn Ingi segir að þó Guðni sé kominn úr stjórnarráðinu sé enn gagn af honum að hafa. „Hann býr yfir mikilli reynslu og það þarf alltaf að sækja í hana. Reynsla sem er eins og góð bankainnistæða sem hleður alltaf á sig vöxtum.“ Aðrir stjórnmálamenn sem eru innundir hjá Hrútavinafélaginu, og félagið þá hjá þeim, eru vitaskuld Árni Johnsen, sem hefur verið viðloðandi bryggjuhátíð alla tíð. „Krafturinn í Árna er meira virði en einhverjir peningar,“ segir Björn Ingi. Össur Skarphéðinsson telst einnig til innstu koppa í búri sem og Illugi Gunnarsson, Björgvin G. Sigurðsson og Bjarni Harðarson. Reyndar fór ekki vel fyrir pólitískum frama Bjarna en Björn Ingi segir að Hrútavinafélagið hafi ekki fengið við neitt ráðið – þar var um að kenna draugum þar sem bakland Bjarna er einkum. „Það voru einhverjir draugar að djöflast í tökkum tölvu hans.“ Það stendur mikið til. Innsigla á hrútavinasamband við félaga á Vík í Mýrdal en þaðan kemur sendinefnd og hljómsveit þeirra Granít verður með bændaball á bryggjunni eftir varðeld og bryggjusöng Árna Johnsen. Hátíðinni lýkur svo á mánudag en þá verður farin afmælisferð í Garðinn. „Þar borðum við kæsta skötu með vinum okkar á Reykjanesi en eitt dæmið um áhrifamátt Hrútavina er að vinur okkar Ásmundur Friðriksson er orðinn bæjarstjóri í Garðinum.“ jakob@frettabladid.is Alþingi, þingfundur, fyrirspurn, fyrirspurnartími Össur Skarphéðinsson Illugi Gunnarsson Björgvin G. Sigurðsson þingmaður alþingismaður Samfylking Samfylkingar Suðurkjördæmi vinstri maður Bjarni Harðarson
Mest lesið Nicole er fyrir norðan Lífið Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Lífið Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Lífið Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Lífið Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Fleiri fréttir Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Sjá meira