Sendingu bóluefnis til Íslands flýtt 12. október 2009 16:32
Að ósk sóttvarnalæknis hefur verið flýtt innflutningi á fyrsta skammti af bóluefni gegn H1N1 veirunni, sem Íslendingar hafa tryggt sér aðgang að með samningi við lyfjaframleiðandann GlaxoSmithKline (GSK). Gert er ráð fyrir að fyrsta sending af bóluefninu, um 15 þúsund skammtar, komi til landsins næst komandi fimmtudag 15. október. Þetta kemur fram í tilkynningu frá GSK á Íslandi en þar segir ennfremur að með samningi sem íslensk stjórnvöld gerðu við GSK árið 2007 voru Íslendingum tryggðir 300 þúsund skammtar af bóluefni gegn heimsfaraldri inflúensu. Samningurinn felur í sér að Íslendingar fá ákveðið hlutfall af því bóluefni sem verksmiðjur GSK framleiða í viku hverri. „Fyrstu áætlanir gerðu ráð fyrir að framleiðsla á bóluefninu kæmist á góðan skrið í september og að fyrstu skammtarnir kæmu hingað til lands um miðjan október. Þar sem seinkun varð á framleiðsluferlinu hefur afgreiðsla á bóluefni til þeirra landa sem voru með sambærilega samninga við GSK tafist um tvær vikur. Fyrstu sendingar af bóluefni til þessara landa voru afgreiddar frá verksmiðjum GSK undir lok síðustu viku. Miðað var við að í fyrstu sendingu af bóluefni til Íslands yrðu um 70 þúsund skammtar af bóluefni en það samsvarar nokkurra vikna framleiðslu upp í samninginn við Íslendinga. Að ósk sóttvarnalæknis hefur nú verið ákveðið að flýta fyrstu sendingu af bóluefninu þannig að fyrsti skammturinn verði kominn hingað til lands um miðja þessa viku. „Íslendingar verða meðal fyrstu þjóða til að hefja bólusetningu gegn H1N1 veirunni þótt magnið sem við fáum í þessari fyrst sendingu verði ekki jafn mikið og menn höfðu gert ráð fyrir," segir Hjörleifur Þórarinsson framkvæmdastjóri GlaxoSmithKline á Íslandi."
Mest lesið Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Innlent Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Innlent Áhyggjufullir bandamenn í Asíu: Vilja taka fulla stjórn á eigin vörnum Erlent Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Innlent Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Innlent Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Innlent Hin hliðin ljúgi að landsmönnum Innlent Íbúar Bolungarvíkur urðu varir við borgarísjaka Innlent Ráðuneytið birtir útreikningana Innlent Verktakar óttast stýrivaxtahækkun: „Þá springur allt í loft upp aftur“ Innlent Fleiri fréttir Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Íbúar Bolungarvíkur urðu varir við borgarísjaka Hin hliðin ljúgi að landsmönnum „Salami-aðferðin“ geri það erfitt að hætta við Verktakar óttast stýrivaxtahækkun: „Þá springur allt í loft upp aftur“ Réttarhöld í Reykholtsmáli halda áfram og djúpfölsunum fjölgar Ráðuneytið birtir útreikningana Andstæðingar segja að Áfram Ísland hafi úr allt að 300 milljónum að spila Hafi ekki hótað með keðjusög og að henda þolanda útbyrðis við Grænlandsstrendur Lag Gunnars og Davíðs hljómar þegar hringt er í borgina Óvissustigi í Öskju aflýst Dómsmálaráðherra valdi Ásgerði í Hæstarétt Grunuðum þjófum vísað úr landi og meinuð endurkoma í 7 ár Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Heiðrún Lind á toppnum hjá hagsmunasamtökum Kvikuhlaup frá Svartsengi enn líklegasta sviðsmyndin Tíu af tuttugu efstu embættismönnunum hjá orkufyrirtæki Hafi aldrei farið í Reykholt Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Óttast að þeir tekjulægstu dragi úr kaupum á mat Verðhækkanir hjá Reykjavíkurborg og Kristrún á fundaferðalagi Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Hitnar í kolunum: Já og nei í Pallborði Stolinn bíll fannst úti í á Vilja bæta umferðarflæði með hraðari snjallljósavæðingu Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Sjá meira