Ráðherra sagður tala OR niður 12. október 2009 04:15 svandís svavarsdóttir Sökuð um að bregða fæti fyrir verkefni Orkuveitunnar. „
Það er sérkennilegt þegar ekki má benda á hið augljósa. Það eru erfiðleikar með bæði orkuöflun fyrir álver í Helguvík og fjármögnun Hverahlíðarvirkjunar,“ segir Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra. Svandís var harðlega gagnrýnd um helgina vegna viðtals við hana í Fréttablaðinu á laugardag. Þar sagði hún Orkuveituna ekki standa undir skuldsetningu vegna virkjanaframkvæmda í Hverahlíð. Því verði að fara varlega. Haft er eftir Guðlaugi G. Sverrissynin, stjórnarformanni Orkuveitu Reykjavíkur, í yfirlýsingu um helgina að Svandís hafi ítrekað gert tilraun til að bregða fæti fyrir verkefni sem tiltekin séu í stöðugleikasáttmála stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins. Orkuveitan vinni að fimmta áfanga Hellisheiðarvirkjunar, líklega einni mannaflsfrekustu framkvæmd sem standi yfir á landinu. Hún sé ekki fjármögnuð að fullu en vilyrði sé fyrir langtímafjármögnun frá Evrópska fjárfestingarbankanum sem nái einnig til helming Hverahlíðarvirkjunar. „Það er ótækt að búa við það að fulltrúi ríkisstjórnarinnar leitist við að draga úr fjárhagslegum trúverðugleika þessa fyrirtækis,“ segir í yfirlýsingunni. Svandís segir viðbrögðin býsna öflug. Vissulega þurfi að tala um málið áður en lengra sé haldið. „Mér finnast viðbrögðin bera keim af pólitískum leiðangri,“ segir Svandís. - jab
Mest lesið Hætta með ökuskírteini í símaveski vegna Evrópureglna Innlent Ísraelsmenn undirbúi árás á skútuna með Gretu Thunberg um borð Erlent Trump sendir þjóðvarðlið til Los Angeles Erlent Hótar Musk alvarlegum afleiðingum styðji hann Demókrata Erlent „Ertu kannski Íslendingur?“ Lífið Alþjóðlegir sérfræðingar ræða baráttuna gegn myglu í Hörpu Innlent Ríkisstjóri Utah heimsækir Eyjar: Mormónarnir vissu allt um sprönguna Innlent Rannsökuðu eigin samsæriskenningar um fljúgandi furðuhluti Erlent 70 milljóna króna halli vegna uppsagnar samningsins Innlent Danskar herþotur verða staðsettar á Grænlandi Erlent Fleiri fréttir Alvarlegt ástand í Los Angeles og opnun nýs Konukots Eftirlýstur maður handtekinn grunaður um vændiskaup Ríkisstjóri Utah heimsækir Eyjar: Mormónarnir vissu allt um sprönguna Heilbrigðisstofnun Suðurnesja skilaði 800 milljónum til ríkissjóðs Alþjóðlegir sérfræðingar ræða baráttuna gegn myglu í Hörpu Hermenn í Los Angeles, mylguráðstefna og síðasti leikur Arons Pálmarssonar Hætta með ökuskírteini í símaveski vegna Evrópureglna Evrópusambandið, rétttrúnaður og endurskoðun veiðiráðgjafarinnar Þrír reyndu að komast undan lögreglu Jöklar hér á landi minnkað um eina Lúxemborg Sækja WorldPride í skugga bakslags í réttindum hinsegin fólks 70 milljóna króna halli vegna uppsagnar samningsins Beðasléttur í borginni: Óttast óafturkræfan skaða á Laugarnesi Fleiri börn deyja á Gasa og óttast um fornminjar í Laugarnesi Ók á gangandi vegfarenda og keyrði burt Umræðu um bókun 35 aftur frestað Ummæli Kolbrúnar blaut tuska í andlit ungmenna Norðurlandamót í Bridge á Laugarvatni alla helgina Yfirfara þurfi öryggismál við Brúará Enn eitt banaslysið í Brúará, landvinningar lúsmýs og þungarokkshátíð Vísbendingar um að síðasta vígið sé fallið „Ef þetta gengur vel mun hún eignast allan bátinn“ Konan sem féll í Brúará er látin Fimm frumvörp fjögurra ráðuneyta samþykkt Klara Baldursdóttir er látin Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út vegna göngumanns „Kraftmiklar og afgerandi aðgerðir gegn skipulagðri brotastarfsemi“ „Þegar fjármagnið klárast, þá klárast líka aðgengið“ Hressar og skemmtilegar systur með geitur á Geysi Loka hluta útsýnispallsins vegna aurskriðu Sjá meira