Innlent

Siðareglur fyrir embættismenn og ráðherra

Jóhanna Sigurðardóttir hyggst leggja fram frumvarp á Alþingi þar sem sett verði ákvæði í lög um Stjórnarráð íslands er feli forsætisráðherra að stafesta siðareglur fyrir ráðherra og starfsfólk ráðuneyta og skipa siðanefnd.
Jóhanna Sigurðardóttir hyggst leggja fram frumvarp á Alþingi þar sem sett verði ákvæði í lög um Stjórnarráð íslands er feli forsætisráðherra að stafesta siðareglur fyrir ráðherra og starfsfólk ráðuneyta og skipa siðanefnd.
Forsætisráðuneytið hefur birt drög að siðareglum fyrir embættismenn og ráðherra á vef stjórnarráðsins. Almenningi gefst nú kostur á að gera athugasemdir og koma með ábendingar um hvað megi betur fara í þessum drögum að siðareglum.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu en þar segir einnig að frestur til að skila inn athugasemdum á netfangið postur@for.stjr.is renni út 9. nóvember næstkomandi.

„Í kjölfarið hyggst Jóhanna Sigurðardóttir leggja fram frumvarp á Alþingi þar sem sett verði ákvæði í lög um Stjórnarráð Íslands er feli forsætisráðherra að staðfesta siðareglur fyrir ráðherra og starfsfólk ráðuneyta og skipa siðanefnd. Reglurnar sjálfar, að teknu tilliti til athugasemda almennings, munu fylgja frumvarpinu í drögum þannig að þingmenn geti þá fjallað um þær samhliða afgreiðslu frumvarpsins.

Á vormánuðum 2009 skipaði forsætisráðherra starfshóp tveggja starfsmanna úr stjórnsýslunni og eins utanaðkomandi sérfræðings til að leggja drög að siðareglum fyrir ráðherra og starfsmenn ráðuneyta. Samráð hefur verið haft m.a. við starfsfólk ráðuneytanna og umboðsmann Alþingis. Reglurnar eiga að tjá gildi og meginreglur stjórnsýslunnar og stuðla að faglegri þróun hennar. Um þessar siðareglur gildir sama og um aðrar slíkar reglur; þær eru viðbót við formlegar kröfur til stjórnsýslunnar, þ.e. þau lög og reglur sem um hana gilda.

Í siðareglunum er sérstaklega reynt að móta reglur sem koma eiga í veg fyrir að hagsmunaárekstrar verði í störfum ráðherra, embættismanna og annars starfsfólks Stjórnarráðsins. Sett eru fram fjögur megingildi um störf í Stjórnarráði Íslands sem eigi að mótast af óhlutdrægni. ábyrgð, þjónustu og heilindum. Einnig eru mótaðar í texta 20 góðar siðvenjur sem starfsfólk stjórnarráðsins eiga að tileinka sér.

Drögin að siðareglum fyrir embættismenn og ráðherra eru birt á vef Stjórnarráðsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×