Ægir með Qavak í togi 12. október 2009 11:45
Varðskipið Ægir er með grænlenska bátinn Qavak í togi og eru skipin á leið til hafnar í Reykjavík. Grænlenska skipið var á leið til Danmerkur þegar það varð vélarvana í gærmorgun um 200 sjómílur suð-vestur af Reykjanesi með fjóra menn í áhöfn. Að sögn Landhelgisgæslunnar barst beiðni um aðstoð til stjórnstöðvar Gæslunnar í gegnum flutningaskipið Naja Arctica sem kom Qavak til aðstoðar og beið hjá bátnum þar til Ægir kom á svæðið. Þá hafði skipið rekið um 30 sjómílur í norð-vestur. Togskipið Qavak er um 200 tonn og 22 metra langt og er í eigu Polar Seafood á Grænlandi. Að sögn skipherra á Ægi var dráttarlínu skotið yfir í Qavak rúmlega níu í morgun og gekk aðgerðin vel. Að sögn skipherrans er áhöfn skipsins í góðu ásigkomulagi, veður á svæðinu hefur gengið þónokkuð niður frá því sem var í nótt en þó er talsverður sjór og ölduhæðin 4-6 metrar. Ágæt veðurspá er framundan og er búist við meðvindi á leið til Íslands. Reiknað er með að skipin komi til hafnar snemma á miðvikudagsmorgun.
Mest lesið Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Innlent Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Innlent Áhyggjufullir bandamenn í Asíu: Vilja taka fulla stjórn á eigin vörnum Erlent Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Innlent Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Innlent Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Innlent Hin hliðin ljúgi að landsmönnum Innlent Íbúar Bolungarvíkur urðu varir við borgarísjaka Innlent Ráðuneytið birtir útreikningana Innlent Verktakar óttast stýrivaxtahækkun: „Þá springur allt í loft upp aftur“ Innlent Fleiri fréttir Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Íbúar Bolungarvíkur urðu varir við borgarísjaka Hin hliðin ljúgi að landsmönnum „Salami-aðferðin“ geri það erfitt að hætta við Verktakar óttast stýrivaxtahækkun: „Þá springur allt í loft upp aftur“ Réttarhöld í Reykholtsmáli halda áfram og djúpfölsunum fjölgar Ráðuneytið birtir útreikningana Andstæðingar segja að Áfram Ísland hafi úr allt að 300 milljónum að spila Hafi ekki hótað með keðjusög og að henda þolanda útbyrðis við Grænlandsstrendur Lag Gunnars og Davíðs hljómar þegar hringt er í borgina Óvissustigi í Öskju aflýst Dómsmálaráðherra valdi Ásgerði í Hæstarétt Grunuðum þjófum vísað úr landi og meinuð endurkoma í 7 ár Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Heiðrún Lind á toppnum hjá hagsmunasamtökum Kvikuhlaup frá Svartsengi enn líklegasta sviðsmyndin Tíu af tuttugu efstu embættismönnunum hjá orkufyrirtæki Hafi aldrei farið í Reykholt Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Óttast að þeir tekjulægstu dragi úr kaupum á mat Verðhækkanir hjá Reykjavíkurborg og Kristrún á fundaferðalagi Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Hitnar í kolunum: Já og nei í Pallborði Stolinn bíll fannst úti í á Vilja bæta umferðarflæði með hraðari snjallljósavæðingu Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Sjá meira