Fær símhringingar að næturlagi vegna Fangavaktar 30. október 2009 07:30 Vinsæl persóna. Kenneth Máni hefur slegið í gegn hjá áhorfendum Fangavaktarinnar og slær meðal annars hinni heilögu þrenningu við í netkosningu á vísir.is. Kenneth er að sögn Björns Thors velmeinandi strákur sem yfirleitt lendir þó í súpunni á meðan allir aðrir sleppa.Fréttablaðið/Vilhelm „
Kenneth Máni meinar vel og er góður strákur sem er auðvelt að plata í innbrot á alls kyns forsendum. Hann er hins vegar alltaf gæinn sem situr í súpunni og endar einn í handjárnum inni í lögreglubíl á meðan allir hinir sleppa,“ segir Björn Thors, sem farið hefur á kostum í hlutverki áðurnefnds Kenneths í Fangavaktinni. Kenneth hefur stimplað sig það rækilega inn að samkvæmt netkosningu á vísir.is er hann farinn að skyggja á hina heilögu þrenningu, þá Ólaf Ragnar, Georg og Daníel. Björn segist hafa fengið mikil viðbrögð við þessum karakter, fólk stoppi hann úti á götu og hringi í hann um miðjar nætur til að ræða hann aðeins frekar. „Ég er nú búinn að vera leikari í nokkur ár, svo leikur maður einn vitleysing og það er eins og maður hafi aldrei gert neitt áður.“ Björn vill þó ekki eigna sér heiðurinn einn. Kenneth sé fyrst og fremst barn handritshöfunda þáttanna. „Nafngiftin er náttúrulega snilld, hún segir raunar allt sem segja þarf,“ segir Björn og bætir því við að Vaktarhópurinn svokallaði leggi mikið upp úr spunavinnu. „Þegar ég mætti á minn fyrsta samlestur var handritið til í grófum dráttum. Svo leggja allir í púkkið, maður kynnist hinum persónunum og ekki síst manns eigin. Það er því mikil hugmyndavinna sem liggur að baki hverri senu,“ útskýrir Björn. Miklar pælingar liggja því að baki persónunum og hver og ein á sér sína sögu. „Þannig er til að mynda ágæt saga á bak við hárið hans. Kenneth var sko með hanakamb, mjög töff hanakamb sem var aflitaður. En svo var hann handtekinn og það er auðvitað engin hárgreiðslustofa á Litla-Hrauni þannig að kamburinn er að vaxa úr.” Kenneth er einn helsti meðreiðarsveinn Georgs Bjarnfreðarsonar á Litla-Hrauni og þar sem Georg er ákaflega ýkt persóna þurfti Björn að feta hárfínan milliveg í atriðunum á milli þeirra. „Maður má ekki gera of mikið til að skyggja á en heldur ekki of lítið þannig að maður týnist bara. Annars er Jón [Gnarr] svo ofboðslega flinkur leikari og les mótleikara sinn svo vel að þetta var aldrei neitt mál.“ freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Ólafur Darri herjar á ringlaðan Jamie Dornan Bíó og sjónvarp Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Hozier skemmti sér á almyrkvahátíð Tónlist Engin stereótýpa: „Það breyttist allt þegar ég var í fimmta eða sjötta bekk“ Áskorun Efna til söfnunar í minningu Hennings Lífið Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Lífið Fleiri fréttir Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Ocasio-Cortez á lausu Sjá meira