Týndi nærbuxunum sínum á barnum 1. október 2009 06:45 Jóhannes Haukur varð fyrir því óláni að týna lukkunærbrókunum. Hann segir það lán í óláni því nú geti hann staðið á eigin fótum. Fréttablaðið/GVA „
Hvernig útskýrir maður fyrir konunni sinni að maður hafi týnt nærbuxunum á barnum? Maður segir bara satt og rétt frá,“ segir Jóhannes Haukur Jóhannesson, leikari og Hellisbúi með meiru. Eins og Fréttablaðið greindi frá fyrir nokkru á Jóhannes sínar lukkunærbuxur sem hann leikur alltaf í. En kvöld eitt ákvað hann að skella sér aðeins út á lífið með félögum sínum og hafði lukkubrækurnar með sér í plastpoka. Svo óheppilega vildi til að Jóhannes gleymdi pokanum með heillagripnum í og hann reiknar fastlega með því að enginn hafi verið svo góður í sér að geyma brækurnar eða passa þær þar til hann vitjaði þeirra aftur. Þær séu því týndar og tröllum gefnar. Jóhannes kveðst líta á það sem lán í óláni að undirfötin séu horfin, því nú gefist honum kærkomið tækifæri til að standa eigin fótum á sviði, reyndar nærbuxnalaus. „Ég er ekki búinn að gera það upp við mig hvort ég verði í nærbuxum eða ekki, það kemur bara í ljós. Eða ekki,“ segir Jóhannes en Hellisbúinn fer á smá ferðalag um miðjan mánuðinn og verður meðal annars sýndur á Akureyri hinn 16. október. Annars er í nægu að snúast hjá leikaranum og hann hefur varla haft tíma til að syrgja lukkubrækurnar. „Nei, við erum að fara að taka upp sjónvarpsþáttinn Hjá Marteini í næstu viku og svo er ég að bíða eftir því að Gunnar Björn, leikstjóri Skaupsins, hringi í mig,“ segir Jóhannes, meira í gríni en alvöru, jafnvel þótt hann hafi farið á kostum í síðasta skaupi sem Geir H. Haarde. „Ég er reyndar búinn að vera að stúdera annan náunga, Sigmund Davíð. Það hlýtur bara að vera tímaspursmál hvenær sveitungi minn úr Hafnarfirðinum, Gunni, tekur upp símann og heyrir í mér.“- fgg
Mest lesið Leitaði upprunans og fékk óvænta frænku í heimsókn Lífið Tæplega helmingur tilnefndra leikara til Eddunnar erlendur Bíó og sjónvarp Halla gerir undantekningu vegna andlátsins Lífið Lærði að lifa lífinu upp á nýtt eftir alvarleg veikindi Lífið Páll Edwald og Selma Eir trúlofuð Lífið Sautján þúsund miðar seldir á Kaleo Tónlist „Er ég að klikka strax í 50?“ Lífið Gabbana stígur til hliðar hjá Dolce & Gabbana Tíska og hönnun Umdeildi brautryðjandinn Afrika Bambaataa allur Lífið „Maður þarf að gera alla hluti upp“ Lífið Fleiri fréttir Leitaði upprunans og fékk óvænta frænku í heimsókn Páll Edwald og Selma Eir trúlofuð „Er ég að klikka strax í 50?“ „Maður þarf að gera alla hluti upp“ Umdeildi brautryðjandinn Afrika Bambaataa allur Lærði að lifa lífinu upp á nýtt eftir alvarleg veikindi Sjarmatröllið sem setti popptónlist í öndvegi Halla gerir undantekningu vegna andlátsins Það er komið gó hjá Bó Svala minnist pabba síns Tekur við af dóttur kærastans Lifir með sjúkdóminum en lætur ekkert stöðva sig Skilnaður foreldranna mótað hana einna mest Hórdómur vinsældanna: Núll stjörnur Hvað veistu um… styttur í Reykjavík? Söfnuðu kleinuhringjum ofan í fötu með skrautlegri aðferð Algengur misskilningur að hávært fólk sé með mesta sjálfstraustið The Streets koma fram á Iceland Airwaves „Það er enginn að fara senda þig í stríð“ Aflýsa Wireless eftir að Kanye var meinað að fara til Bretlands Mos Def kemur fram í Gamla Bíó í maí Eftir á fyndið að vera stönguð niður af kind Ráðherrabarn komið í heiminn Furðubandið sem tryllti netið Móðir drengs í ofbeldissambandi opnar sig Offset skotinn við spilavíti í Flórída „Ekki óttast mistök, en vertu skíthrædd við eftirsjá“ Ye á Wireless: Styrktaraðilar hætta við og forsætisráðherrann blandar sér í málið Stjörnulífið: „Sannleikurinn er sexí“ Skagarokk: Boða til Black Sabbath messu og tónlistarveislu næstu helgi Sjá meira