Páll Óskar aleinn á nýrri Jackson-mynd 26. október 2009 08:00 Páll sat einn í Smárabíói og átti fallega stund með konungi poppsins. fréttablaðið/anton „
Þetta var eins og að vera einn með Michael Jackson. Þetta var eins og að fá að taka í spaðann á honum,“ segir Páll Óskar Hjálmtýsson, sem bauðst að sitja einn í lúxussal Smárabíós og horfa á Michael Jackson-myndina This Is It sem verður frumsýnd á miðvikudag. „Það sem manni er efst í huga er þakklæti. Maður er þakklátur fyrir að Michael Jackson hafi verið til og þakklátur fyrir að einhver hafi haft vit á því að taka þessar æfingar upp á filmu,“ segir Palli. Í myndinni er sýnt frá æfingum Jacksons fyrir tónleikaröð sína í London sem átti að hefjast skömmu eftir dauða hans. „Þetta er mynd um listamanninn Michael Jackson en ekki „fríkið“ Michael Jackson. Þú færð innsýn í hvernig hann ætlaði að gera hvert lag fyrir sig og það er magnað að sjá hvað hann er auðmjúkur og þægilegur í umgengni við alla,“ segir Palli. „Hann syngur öll lögin „live“ og ef þú lokar augunum og hlustar á hann syngja þá er þetta fimmtugur maður sem hljómar nákvæmlega eins og þegar hann var 25 ára, sem er ótrúlegt. Hver einasti tónn er svo skýr og hreinn.“ Hann segir að myndin sé hvalreki fyrir sanna aðdáendur Jacksons. „Hann er í það góðu formi og stuði að manni dettur ekki í hug að maðurinn sér að fara að deyja eftir þrjá daga, sem fær mann til að gruna að hann hafi verið drepinn. Það á að rannsaka þennan dauða sem morðmál. Þetta hefðu orðið flottustu tónleikar sögunnar og enginn hefði getað toppað þetta.“ - fb
Mest lesið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Ólafur Darri herjar á ringlaðan Jamie Dornan Bíó og sjónvarp Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Hozier skemmti sér á almyrkvahátíð Tónlist Engin stereótýpa: „Það breyttist allt þegar ég var í fimmta eða sjötta bekk“ Áskorun Efna til söfnunar í minningu Hennings Lífið Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Lífið Fleiri fréttir Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Ocasio-Cortez á lausu Sjá meira