Innlent

Eldur í Vélageymslu í Vatnsdal

Eldur kviknaði í nótt í vélageymslu í Vatnsdal í Húnavatnssýslu og var hún alelda þegar slökkviliðið á Blönduósi kom á vettvang. Slökkvistarf tók um tvær klukkustundir og er skemman og eitthvað af tækjum, sem í henni voru, ónýt. Eldsupptök eru ókunn. Ekki liggur fyrir hvort nálæg hús voru í hættu.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×