Innlent

Kostnaður við skilanefndirnar 260 milljónir

Skilanefndir gömlu bankanna innheimtu ríflega 260 milljónir króna fyrir vinnu sína frá október og fram í febrúar. Þetta kemur fram í tölum sem Fjármálaeftirlitið tók saman fyrir fréttastofu Ríkisútvarpsins og voru birtar í í kvöld.

Þar kom fram að skilanefnd Landsbankans rukkaði mest eða ríflega 100 milljónir. Kostnaðurinn er greiddur úr ríkissjóði.

Skilanefnd Landsbankans hefur innheimt alls ríflega 103 milljónir, skilanefnd Kaupþings tæpar 84 milljónir og skilanefnd Glitnis tæpar 70.

Samtals gera þetta rúmar 260 milljónir í greiðslur til 15 sérfræðinga sem skipa skilanefndir gömlu bankanna. Að meðaltali er þetta um 3,5 milljón króna á mánuði í greiðslur fyrir hvern nefndarmann.

Fram kom í frétt Rúv að þetta sé þó ekki allur kostnaðurinn sem fylgir skilanefndunum. Þær hafa tugi fólks í vinnu hjá sér bæði hér heima og erlendis.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×