GLÆPURINN RITSKOÐAÐUR 30. september 2009 03:30 Danmarks Radio, eða DR, ákvað að klippa burt blóðugustu atriðin í nýjustu þáttaröðinni af Forbrydelsen. Þættirnir verða sýndir ritskoðaðir á RÚV.
Framhald af dönsku sakamálaþáttaröðinni Forbrydelsen byrjaði á DR í síðustu viku. Leikstjóri þáttanna er brjálaður út í forsvarsmenn danska ríkissjónvarpsins. Stóra málið í dönskum fjölmiðlum um þessar mundir er „ritskoðun“ danska ríkissjónvarpsins, DR, á spennuþáttaröðinni Forbrydelsen eða Glæpnum. Fyrri þáttaröðin sló í gegn svo um munaði meðal Dana og Íslendinga og nú snýr Sarah Lund aftur og reynir að leysa flókið morðmál sem gæti teygt sig alla leið í æðstu stöður danska hersins. Danska blaðið BT greinir frá því að blóðugustu og ofbeldisfyllstu atriðin í þáttunum hafi verið klippt út sökum þess að danska ríkissjónvarpið vildi ekki fá holskeflu af kvörtunum frá barnafólki og stjórnmálamönnum, svo vitnað sé beint í BT. Dagskrárstjóri danska ríkissjónvarpsins segir sjónvarpsstöðina einfaldlega vera að fylgja eftir reglum Evrópusambandsins um hvað megi sýna og hvað ekki fyrir klukkan átta á kvöldin. Leikstjóri þáttanna, Kristoffer Nyholm, er hins vegar algjörlega andvígur slíkri ritskoðun og gagnrýnir DR harðlega fyrir að hafa klippt umrædd atriði burt. „DR vildi fá alvöru trylli og verður þá að sýna hann á þeim tíma sem þykir tilhlýðilegur fyrir slíkt myndefni,“ segir Nyholm meðal annars í frétt BT. RÚV mun sýna þáttaröðina strax eftir áramót. Þórhallur Gunnarsson, dagskrárstjóri RÚV, bjóst við því að sýna ritskoðuðu útgáfuna þar sem blóð og ofbeldi verður haldið í lágmarki. „Já, við sýnum þættina eins og DR sýnir þá.“ Aðdáendur Söruh Lund ættu að forðast danskar vefsíður því danskir fjölmiðlar sýna þáttunum mikinn áhuga. Þeir hafa fengið lofsamlega dóma og reikna má með að upplýst verði hver sé morðinginn um leið og síðasti þátturinn hefur verið sýndur.
Mest lesið Hætt saman en ennþá vinir Lífið Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Lífið Þreföld útgáfa Drake: „Þessi gaur er stærsti rappari allra tíma“ Tónlist Madonna með heitustu dansmynd ársins Tónlist Þorgerður Katrín og Sólveig Anna í þrumustuði í Þulu Menning Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lífið Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Lífið Enginn venjulegur sjötugur maður Gagnrýni Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Lífið Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Lífið Fleiri fréttir Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir „Aldrei of seint að gera hlutina“ „Þetta skiptir okkur mjög miklu máli“ Einmanalegt áhugamál fjögurra íslenskra stráka Krónprinsessan inn og út af sjúkrahúsi „Við höfum oftar en einu sinni fundið hann í fjöru“ „Núna stjórna stelpur landinu og strákar klippa hár“ Sjá meira