Malarnáma formanns VG notuð við virkjanaframkvæmdir 9. október 2009 12:52 Steingrímur J. Sigfússon á malarnámu.
Steingrímur J. Sigfússon formaður Vinstri grænna er einn af eigendum jarðarinnar Miðhúsa í Gnúpverjahreppi. Þar fyrirhugar Vegagerðin námu í tengslum við virkjanaframkvæmdir í neðri Þjórsá. Vegagerðinni er heimilt að taka 12 þúsund rúmmetra í Miðhúsum en það telst lítil náma. Þar af leiðandi er framkvæmdin óháð umhverfismati. Þetta kemur fram í Sunnlenska Fréttablaðinu í gær. Þar segir ennfremur að Steingrímur eigi 17% hlut í jörðinni, samkvæmt eignayfirliti á vefsíðu Vinstri grænna, en eiginkona hans, er ættuð frá Miðhúsum. Þar segir einnig að hann eigi 25% hlut í sumarhúsi á jörðinni. Hreppsnefnd Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkti á dögunum breytingu á aðalskipulagi sem heimilar tvær nýjar námur, í landi Miðhúsa og Minna-Hofs. Vegagerðin mun nota þær við uppbyggingu nýs tengivegar milli Árness og Landsvegar sem er lagður gagngert til virkjanaframkvæmda í neðri Þjórsá segir í fréttinni. Þá segir að þrátt fyrir að framkvæmdin sé óháð umhverfismati muni hún skilja eftir sig sár og vegaslóða í fjallshlíðinni. Svæðið sé hins vegar ekki ósnortið því á sama stað var sóttur jarðvegur til línulagna fyrir mörgum árum. Svanur Bjarnason, umdæmisstjóri Vegagerðarinnar, segir í fréttinni að óvíst sé hvenær vegaframkvæmdir við Þjórsá hefjist. Það sé Landsvirkjunar að segja til um slíkt.
Mest lesið Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Innlent Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Innlent Fedorov kallar eftir forsetakosningum í Úkraínu Erlent Áhyggjufullir bandamenn í Asíu: Vilja taka fulla stjórn á eigin vörnum Erlent Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Innlent Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Innlent Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Innlent Hin hliðin ljúgi að landsmönnum Innlent Íbúar Bolungarvíkur urðu varir við borgarísjaka Innlent Víðtækar götulokanir á nýrri hlaupaleið Reykjavíkurmaraþons Innlent Fleiri fréttir Víðtækar götulokanir á nýrri hlaupaleið Reykjavíkurmaraþons Ráðningarferli lögreglustjóra lá niðri vegna sumarleyfa Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Íbúar Bolungarvíkur urðu varir við borgarísjaka Hin hliðin ljúgi að landsmönnum „Salami-aðferðin“ geri það erfitt að hætta við Verktakar óttast stýrivaxtahækkun: „Þá springur allt í loft upp aftur“ Réttarhöld í Reykholtsmáli halda áfram og djúpfölsunum fjölgar Ráðuneytið birtir útreikningana Andstæðingar segja að Áfram Ísland hafi úr allt að 300 milljónum að spila Hafi ekki hótað með keðjusög og að henda þolanda útbyrðis við Grænlandsstrendur Lag Gunnars og Davíðs hljómar þegar hringt er í borgina Óvissustigi í Öskju aflýst Dómsmálaráðherra valdi Ásgerði í Hæstarétt Grunuðum þjófum vísað úr landi og meinuð endurkoma í 7 ár Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Heiðrún Lind á toppnum hjá hagsmunasamtökum Kvikuhlaup frá Svartsengi enn líklegasta sviðsmyndin Tíu af tuttugu efstu embættismönnunum hjá orkufyrirtæki Hafi aldrei farið í Reykholt Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Óttast að þeir tekjulægstu dragi úr kaupum á mat Verðhækkanir hjá Reykjavíkurborg og Kristrún á fundaferðalagi Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Hitnar í kolunum: Já og nei í Pallborði Stolinn bíll fannst úti í á Sjá meira