Innlent

Leyfilegur þorskafli á næsta fiskveiðiári 150 þúsund tonn

Lóa Pind Aldísardóttir skrifar
Hafrannsóknarstofnun leggur til að leyfilegur þorskafli á næsta fiskveiðiári verði 150 þúsund tonn, sem er 10 þúsund tonnum minna en veiða má á yfirstandandi fiskveiðiári. Sjávarútvegsráðherra hefur ekki tekið ákvörðun um hvort hann fylgir loforði forvera síns og auki þorskkvótann í 160 þúsund tonn. Framkvæmdastjóri LÍÚ segir tillögu Hafró vonbrigði en fagnar því að þorskstofninn virðist vera stækka.

Hafrannsóknarstofnun kynnti nú rétt fyrir hádegi ástand helstu fiskistofna á Íslandsmiðum og um leið tillögur sínar um veiðar á næsta fiskveiðiári. Í fyrra lagði stofnunin til að leyft yrði að veiða 130 þúsund tonn af þorski, sem þáverandi ráðherra, Einar K. Guðfinnsson, fylgdi. Á miðju fiskveiðiári ákvað Einar hins vegar að auka þorskkvótann um 30 þúsund tonn - og þar með var leyfilegur heildarafli komin upp í 160 þúsund tonn.

Sú ákvörðun kom til vegna efnahagsþrenginga þjóðarinnar en eins þóttu jákvæðar vísbendingar um stöðu þorskstofnsins benda til að svigrúmið væri meira. Þá gaf Einar K. Guðfinnsson fyrrverandi sjávarútvegsráðherra það einnig út að ráð væri fyrir því gert að á næsta fiskveiðiári yrði heildarþorskkvóti ekki lægri en 160 þúsund tonn.

Nú er hins vegar komið í ljós að Hafrannsóknarstofnun leggur til minni kvóta, eða 150 þúsund tonn. Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ, segir það vonbrigði en jákvætt sé að tillögur Hafró geri ráð fyrir auknum þorskkvóta, það bendi til að þorskstofnin sé í vexti.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×