Verðskuldaður sigur Liverpool á United - Tvö rauð spjöld Henry Birgir Gunnarsson skrifar 25. október 2009 15:55 Torres fagnar marki sínu í dag.
Liverpool-liðið stimplaði sig aftur inn í enska boltann í dag er liðið lagði meistara Man. Utd að velli í stórleik dagsins í enska boltanum. Fernando Torres skoraði fyrra markið á 65. mínútu og David Ngog bætti öðru marki við í uppbótartíma þegar allt lið Man. Utd var komið fram á völlinn. Sigurinn verðskuldaður hjá Liverpool sem spilaði virkilega vel í dag. Leikmenn liðsins geysilega grimmir, liðið vel skipulagt og uppskar eins og það sáði. Þetta var þriðji sigur Liverpool á United í röð. Torres snéri aftur í liðið og gerði geysilega vel er hann skoraði fyrra mark leiksins. Hann fékk stungusendingu frá Benayoun, hélt Rio Ferdinand vel frá sér og kláraði færið af snilld. Antonio Valencia komst næst því að jafna leikinn fyrir United á 84. mínútu er skot hans fór í slána. Nemanja Vidic fékk rautt í þriðja leiknum í röð gegn Liverpool á 89. mínútu. Hann fékk þá sitt annað gula spjald og þar með það rauða. Mascherano fór sömu leið í uppbótartíma en hann fékk einnig tvö gul spjöld. United færði allt sitt lið upp undir lokin og var refsað er Ngog fullkomnaði daginn fyrir Liverpool sem er mætt aftur. Michael Owen spilaði síðustu 25 mínútur leiksins, lét aðeins til sín taka en náði ekki að skora.
Mest lesið Tugir hlupu af stað í Bakgarðshlaupinu Sport Lærði að ganga og tala upp á nýtt: „Þessi röskun er ekkert grín“ Sport Elísa rétt missti af silfri: „Svo kemur þetta helvítis sikk sakk“ Sport Orri áfram heitur á Spáni Fótbolti Sjáðu mörkin: Frábær Doku og aukaspyrnan sem rúllaði í mark Liverpool Enski boltinn Guardiola hvatti West Ham og uppskar hlátur Enski boltinn Grindavík - Tindastóll 85-80 | Gáfu færi á sér en fögnuðu fyrsta sigri Körfubolti Alvöru garðpartý Valsmanna á pallinum hjá Magnúsi Handbolti Kristall skoraði af 45 metra færi en gullið rann úr greipum í vító Fótbolti Úrsliteinvígið hefst í kvöld: Mun tala sinn skít ef þess er þörf Körfubolti Fleiri fréttir Sjáðu mörkin: Frábær Doku og aukaspyrnan sem rúllaði í mark Liverpool Guardiola hvatti West Ham og uppskar hlátur Héldu pressu á Arsenal með þriggja marka sigri Markalaust á Leikvangi ljóssins og Evrópubaráttan heldur áfram Liverpool - Chelsea 1-1 |Sóttu stig á Anfield eftir sex tapleiki í röð Arteta uppskar hlátur eftir að hafa verið spurður út í gagnrýni á fagnaðarlæti Í straff vegna skilaboða til ólögráða stúlku Sakaðir um ólöglegar upptökur Neyðast til að styðja liðið sem þeir hata Carrick segist bíða rólegur Liverpool hættir við verðhækkanir City varð Englandsmeistari heima í sófanum Sagður þjást en vill enga vorkunn Sér góðar fréttir fyrir fótboltann í heild sinni með afhroði Chelsea Henry vill að Lewis-Skelly byrji gegn Atlético Madrid Flottustu hjólhestaspyrnumörk í sögu ensku úrvalsdeildarinnar Fékk svakalegan skurð gegn Chelsea og stjórinn vonast eftir kraftaverki Sjáðu mörkin: Sex marka rússíbanareið sem gæti kostað City titilinn Titilvonir City tóku á sig skell í kvöld Óhugnanlegt atvik á Brúnni Forest skellti Chelsea Gætu þurft að tapa til að komast í Meistaradeild Evrópu Segir að óásættanlegt tímabil Liverpool megi ekki endurtaka sig Brjálaður út í eigin leikmenn: „Hafa sóað heilu ári af mínum ferli“ Aron búinn að skipta um skoðun og vill Carrick áfram Slot við Hjörvar: „Ég held að öllum hafi liðið þannig“ Mjög brugðið við fréttirnar af Ferguson Sjáðu sigurmark Mainoo og Tottenham stökkva upp úr fallsæti „Svona hefur þetta verið allt mitt líf“ Tottenham kom sér upp úr fallsæti Sjá meira