Læknar Jacksons kærðir 21. ágúst 2009 04:30 Lögreglan í Los Angels rannsakar nú andlát Jacksons sem sakamál og læknarnir hans tveir, Conrad Murray og Arnold Klein, liggja sterklega undir grun um að hafa ávísað á hann of sterkum verkjalyfum sem hugsanlega drógu hann til dauða.
Bandarískir og breskir fjölmiðlar héldu því fram í gær að tveir af einkalæknum Michaels Jackson yrðu færðir í gæsluvarðhald og hugsanlega kærðir fyrir aðild að dauða poppgoðsins. Bandaríska fréttastöðin Fox News hélt því fram í gær Dr. Conrad Murray og Dr. Arnold Klein, einkalæknar Michaels Jackson, yrðu handteknir eftir tvær vikur og að þá yrðu þeir kærðir fyrir manndráp af gáleysi. Lögreglan í Los Angeles verst allra frétta en samkvæmt Fox News hyggst hún nota næsta hálfa mánuðinn til að safna saman sönnunargögnum sem eiga að nægja til að byggja upp mál gegn Murray og Klein. Þótt krufning Jacksons hafi ekki verið gerð opinber þykir mönnum líklegt að verkjalyfið Propafol, sem er víst í sterkara lagi, hafi dregið Jackson til dauða 25. júní. Læknarnir hafi skrifað upp á lyfið fyrir Jackson og með því sýnt vítavert gáleysi. Eftir því sem Fox News kemst næst ber Klein mun meiri ábyrgð á andláti poppguðsins en Murray enda var hann einkalæknir Michaels. Talið er líklegt að Jackson hafi fengið hjartaáfall á heimili sínu í Kaliforníu af völdum verkjalyfsins. Húsleit Þegar hefur verið framkvæmd húsleit hjá lækninum Conrad Murray og er búist við að hann ásamt Arnold Klein verði kærður fyrir manndráp af gáleysi. Nordic Photos/ AFP Í gær var síðan samningsdrögum tryggingafyrirtækisins AEG og Jacksons lekið á netið. Þar kemur í ljós að Jackson hafi verið heill heilsu. Læknar tryggingafélagsins gátu ekki komið auga á neitt í heilsufari hans sem hefði getað komið í veg fyrir að hann gæti sinnt This is it-tónleikaferðinni sem skyldi og rennir sú staðreynd enn frekari stoðum undir grun lögreglunnar í Los Angeles. Læknarnir tveir hefðu ekki átt að skrifa upp á þetta sterka verkjalyf. Sá samningur upplýsir einnig að Jackson hugðist ekki vera með neitt hálfkák á sviði því hann skuldbatt sig til að vera á sviðinu í áttatíu mínútur í það minnsta. Einhverjar sögusagnir höfðu verið á kreiki á netinu um að Jackson myndi einungis bregða fyrir í mýflugumynd. Ekki er hægt að sleppa því að minnast á fjölskyldu Jacksons sem nú hefur skotist aftur fram á sjónarsviðið því raunveruleikaþáttur er í bígerð um bræður hins fallna poppguðs og endurkomu þeirra í kastljós fjölmiðlanna.
Mest lesið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Nicole er fyrir norðan Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Fleiri fréttir Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Sjá meira