Innlent

Hryðjuverkalög verði endurskoðuð reglulega

Katrín Jakobsdóttir sat fundinn fyrir hönd Íslands.
Katrín Jakobsdóttir sat fundinn fyrir hönd Íslands.
Meðal helstu atriða í lokayfirlýsingu ráðherrafundar Evrópuráðsins sem haldinn var hér á landi í vikunni er hvatning fundarins til Evrópuríkja að þau skuli reglulega endurskoða lög sín um baráttu gegn hryðjuverkum og beitingu þeirra. „Þannig skuli koma í veg fyrir að þeim sé misbeitt í málefnum sem eru alls óskyld hryðjuverkum - til að mynda til að hefta tjáningarfrelsi eða halda upplýsingum leyndum," segir ennfremur. Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra sótti fundinn fyrir Íslands hönd.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×