Innlent

Færeyskir jafnaðarmenn óska Jóhönnu til hamingju

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Frá blaðamannafundi á Hótel Borg þar sem ríkisstjórnin var kynnt.
Frá blaðamannafundi á Hótel Borg þar sem ríkisstjórnin var kynnt.

Jafnaðarflokkurinn í Færeyjum hefur sent Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra bréf þar sem Íslendingum er óskað til hamingju með nýju ríkisstjórnina. Þá er Jóhönnu jafnframt óskað velfarnaðar í starfi og óskað til hamingju með það að vera fyrsta íslenska konan í starfi forsætisráðherra.

„Fyrir Jafnaðarflokkinn er gott samband milli þjóðanna og okkar pólitísku flokka mjög mikilvægt. Jafnaðarflokkurinn hlakkar til góðs samstarfs milli landanna, flokkanna og milli ríkisstjórnar Íslands og Færeyja," segir orðrétt í bréfinu til Jóhönnu.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×