Innlent

ESB tillaga ætti að ná í gegn

Miklar líkur eru á að fyrirhuguð þingsályktunartillaga ríkisstjórnar um aðildarviðræður að Evrópusambandinu nái meirihluta atkvæða, standi Framsóknarflokkur og Borgarahreyfingin við fyrri yfirlýsingar. Þetta segir Einar Mar Þórðarsson stjórnmálafræðingur sem telur þó aðferð ríkisstjórnarinnar í málinu heldur óvenjulega.

Ríkisstjórnin hyggst leggja fram þingsályktunartillögu um hvort hefja eigi viðræður um aðild að Evrópusambandinu fljótlega eftir að þing kemur saman. Meirihluti þingmanna þarf því að samþykkja tillöguna svo hún fari í gegn.

Bæði formaður Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins gagnrýna fyrirkomulagið og segja ríkisstjórnina treysta á stjórnarandstöðu í málinu, auk þess ríki óvissa um afstöðu Vinstri grænna. Fimm þeirra hafa nú þegar lýst því yfir að þeir séu andvígir ESB.

Einar Mar Þórðarson stjórnmálafræðingur segir það hins vegar óvenjulegt hjá ríkisstjórninnni að leggja málið í þingsályktunartillögu. Málið sé umdeilt og forvitnilegt verði að sjá hvernig sjálfstæðisflokkurinn bregðist við þessu.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×