MAC styður HIV-Ísland alnæmissamtök 3. desember 2009 05:30 Jónsi í Í svörtum fötum er talsmaður Viva Glam-dagsins og mun afhenda HIV-Ísland ávísun upp á 2,2 milljónir klukkan 15 á laugardag. „
Efnahagsástandið hefur sett strik í reikninginn hjá HIV-Ísland alnæmissamtökunum þar sem mikið hefur dregið úr fjárframlögum til samtakanna. Því má segja að ekki hefði orðið af árlegri fræðslu til unglinga ef MAC Aids fund hefði ekki notið við,“ segir Lísa Einarsdóttir, vörumerkjastjóri MAC á Íslandi. Á laugardaginn fer fram árleg Viva Glam-fjáröflun Alnæmissjóðs MAC. Sjóðurinn hefur um árabil stutt við bakið á samtökunum HIV-Ísland og í ár hefur verið ákveðið að framlag MAC á Íslandi renni til fræðsluverkefnis þar sem farið verður til allra 9. og 10. bekkinga í grunnskólum landsins með fræðslu um HIV og alnæmi. Alnæmissjóður MAC hefur fyrst og fremst aflað fjár með sölu á Viva Glam-varalitunum, en sú lína samanstendur af sex litum, allt frá sígildum rauðum að fjólubleikum. Sjóðurinn er í fararbroddi í baráttunni gegn HIV-smiti og alnæmi og styður rúmlega 700 stofnanir um allan heim, en framlag MAC á Íslandi hefur verið eyrnamerkt fræðsluverkefni HIV-Ísland. Fjáröflunin fer fram í verslun MAC í Debenhams, Smáralind, næstkomandi laugardag milli klukkan 14 og 16, en þar munu 3 Raddir og Beatbox meðal annars taka lagið. „Þjóðþekktir einstaklingar verða á staðnum að selja rauða borðann og safna fyrir samtökin. Jónsi í Í svörtum fötum er talsmaður Viva Glam-dagsins og mun afhenda HIV-Ísland ávísun upp á 2,2 milljónir klukkan 15 á laugardag, en Ilmur Kristjánsdóttir leikkona er verndari samtakanna og mun taka við ávísuninni fyrir þeirra hönd,“ segir Lísa. - ag
Mest lesið Krummi kveður pabba sinn Lífið „Ég hef grátið því að ég var svo skotin í þér“ Lífið Rákust á Mamdani yfir morgunbollanum Lífið „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Lífið Leikaraliðið í Leitinni að Gollri fullskipað: Jamie Dornan verður Aragorn Lífið Joy Harmon er látin Bíó og sjónvarp Þetta er áratugurinn sem samtíminn saknar mest Lífið Mætti í þáttinn til að vinna sér inn fyrir þurrkara Lífið „GusGus gera sexý lög og Birnir er einfaldlega sexý beast“ Tónlist Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Lífið Fleiri fréttir Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Krummi kveður pabba sinn Leikaraliðið í Leitinni að Gollri fullskipað: Jamie Dornan verður Aragorn Oddvitaáskorunin: Myndi vilja vera „sérfræðingur að sunnan“ Rákust á Mamdani yfir morgunbollanum Þetta er áratugurinn sem samtíminn saknar mest Hvað veistu um... Vetrarólympíuleika? Mætti í þáttinn til að vinna sér inn fyrir þurrkara Frumfluttu lag Barnamenningarhátíðarinnar fyrir káta krakka „Ég hef grátið því að ég var svo skotin í þér“ Uppeldið hjá ömmu og afa áhrifamest „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Gurrý um svuntuaðgerðina: „Jesús hvað þetta er búið að vera erfitt“ Clavicular fluttur á spítala vegna ætlaðrar ofskömmtunar Oddvitar landsins takast á við Oddvitaáskorunina Óvænt ökuferð að ógleymanlegu augnabliki Umdeildum K-Pop stjörnum skipt út í Hörpu Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York „Svo kom í ljós að þetta var alls ekki amma mín“ „Hún reyndi aldrei að koma í stað mömmu“ „Ég var mjög skrítinn krakki“ Bryndís Líf orðin móðir Yfirgaf yfirstéttina fyrir loftárásir, listaverkarán og sprengjugerð Oddvitaáskorunin: „Big Papa“ uppáhalds gælunafnið Fyrsti transmaðurinn sem fer með aðalhlutverk í íslenskri kvikmynd Þriðja dóttir Sverris Bergmanns og Kristínar Evu komin í heiminn Óborganlegt faðmlag Jóhanns og Sigurðar „Litlu hlutirnir gefa lífinu merkingu“ Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Sjá meira