Stofnuðu Framkvæmdafélag listamanna 3. desember 2009 06:00 Önnum kafnar Margrét og Harpa Fönn hafa í mörgu að snúast í nýstofnuðu fyrirtæki sínu, en þær gefa út bók og undirbúa myndlistarsýningu auk þess sem þær halda saumaklúbbakynningar á myndlist.Fréttablaðið/Valli „
Það má segja að þetta sé alhliða aðstoð við myndlistarmenn," segir Margrét Áskelsdóttir listfræðingur, en hún hefur stofnað Framkvæmdafélag listamanna, eða Frafl, ásamt vinkonu sinni Hörpu Fönn Sigurjónsdóttur lögfræðingi. Félagið stofnuðu þær í nóvember og er markmið þess að skapa ný tækifæri fyrir myndlistarmenn, sjá um kynningu og sölu á verkum og gæta réttinda þeirra. „Þegar ég útskrifaðist úr listfræðinni fór ég að vinna fyrir myndlistarkonuna Rakel McMahon. Stuttu eftir það leitaði Snorri Ásmundsson til mín og allt í einu var ég orðin eins konar aðstoðarkokkur þessara listamanna. Ég fann að mig vantaði meiri undirstöðu því ég kunni ekki inn á lögin. Þá leitaði ég til Hörpu Fannar og við ákváðum að gera þetta saman, stofnuðum fyrirtæki og erum í frumkvöðlafræði í HR núna, sem hefur hjálpað okkur mikið við uppbygginguna," útskýrir Margrét og segir þær stöllur hafa í mörgu að snúast, enda starfsemin tekið stakkaskiptum eftir að þær stofnuðu fyrirtækið og starfsemin meira verkefnatengd. „Við erum að gefa út bók með Snorra Ásmundssyni, Beauty swift generation revolution, undirbúa sýningu með Rakel McMahon í Kronkron og svo erum við með saumaklúbbakynningar á myndlist sem við köllum gjarnan Tupperware-kynningar," segir Margrét brosandi. „Þá erum við að taka hámenninguna sem myndlistin er á annað stig svo það má segja að það sé pínulítill gjörningur í leiðinni," bætir hún við og segir örfá kvöld vera laus í saumaklúbbakynningar í desember, en áhugasamir geta sent póst á frafl@frafl.is.- ag
Mest lesið Dauðkveið fyrir tónleikunum en þeir komu á óvart Gagnrýni Hundrað ára virðulegt setur með grænu baði og gufu Lífið Varkár Magga Bjarna fyllti Tjarnarbíó Menning Amanda Seyfried og Thomas Sadoski skilin Lífið Hafi ekki sjálfur sparkað Macklemore: „Ég myndi aldrei bregðast aðdáendum“ Lífið Flippuðust og fáklæddust á Emmy-hátíðinni Tíska og hönnun Friðrik Þór og Jóna Vigdís ástfangin Lífið Macklemore tjáir sig: „Fólk er drepið í dag og fólk verður drepið á morgun“ Lífið Bob Mackie er látinn Lífið Hinsta ferð Johns Snorra á hvíta tjaldið Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Amanda Seyfried og Thomas Sadoski skilin Hafi ekki sjálfur sparkað Macklemore: „Ég myndi aldrei bregðast aðdáendum“ Hundrað ára virðulegt setur með grænu baði og gufu Bob Mackie er látinn Friðrik Þór og Jóna Vigdís ástfangin Macklemore tjáir sig: „Fólk er drepið í dag og fólk verður drepið á morgun“ Æstir í nektarmyndir Mörthu Stewart Vakna við Star Wars-lagið alla morgna Hvað veistu um… Titanic? Húðdrottning bauð í gellugusu Ed Sheeran sparkar Macklemore Hið alræmda „Epstein drap sig ekki“-samsæri Ein pilla dró Panettiere til dauða Heldur sig til hlés og lifir skírlífi Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum „Ég byrjaði að lesa kaflann og fór bara að gráta“ Skúli Jón og Jennifer gengin í hnapphelduna Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Áskell Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Sjá meira