Meryl hin fullkomna 3. desember 2009 05:00 Meryl Streep er einfaldlega besta leikkonan sem Hollywood hefur alið af sér og kannski helsta sönnunin fyrir því að leikkonur þurfa ekki langa leggi og snoppufrítt andlit til að ná langt ef þær eru hæfileikaríkar.
Bandaríska leikkonan Meryl Streep er lifandi goðsögn í Hollwyood og er á sama stalli í huga bandarískra leikkvenna og Marlon Brando og Robert De Niro hjá körlunum. Nýjasta kvikmynd Meryl Streep heitir Julia & Julia og verður frumsýnd hér á landi um helgina. Myndin flakkar á milli tímabila og segir annars vegar frá hinu fræga matargúrúi Juliu Child og árunum hennar í Frakklandi í kringum 1960 en þar sökkti hún sér ofan í franska matargerð. Og hins vegar frá Juliu Powell sem ákveður dag einn að elda allar uppskriftirnar hennar Child úr hinni víðfrægu matreiðslubók Mastering the Art of French Cooking á einu ári en þær eru 524. Auk Streep fara þau Stanley Tucci og Amy Adams með stór hlutverk í myndinni en leikstjóri og handritshöfundur er Noah Ephron. Meryl Streep er algjörlega einstök leikkona í Hollywood. Ferill hennar hófst fyrir alvöru árið 1978 þegar hún lék í hinni mögnuðu kvikmynd Michael Cimino, The Deer Hunter, á móti Robert De Niro og Christopher Walken. Þar hlaut Streep sína fyrstu tilnefningu af fimmtán til Óskarsverðlauna fyrir túlkun sína á Lindu. Fjórum árum seinna var hún komin með styttuna góðu upp í skáp fyrir Sophie‘s Choice. Streep er fædd árið 1949 og ólst upp í smábænum Bernardsville í New Jersey. Streep fékk snemma áhuga á leiklist og útskrifaðist af leiklistarbraut Yale snemma á áttunda áratugnum. Fyrstu hlutverk hennar voru á sviði í New York en hana fór fljótlega að dreyma um hvíta tjaldið. Sagan segir að hún hafi mætt í inntökupróf fyrir King Kong-kvikmynd Dino De Laurentiis en sá hafi vísað henni á bug á þeim forsendum að Streep væri ljót. Dino kom þessari skoðun sinni á framfæri við aðstoðarmann sinn á ítölsku og honum til mikillar undrunar svaraði Streep honum fullum hálsi til baka. Á ítölsku. Og það hefur kannski verið eitt helsta einkennið á nánast flekklausum ferli leikkonunnar. Hún hefur getað brugðið sér í allra kvikinda líki, náð næstum öllum tungumálum fullkomlega. Streep hefur enn fremur átt frekar auðvelt með að halda einkalífi sínu utan kastljóss fjölmiðlanna, en hún hefur verið gift bandaríska höggmyndalistamanninum Don Gummer síðan 1978. Meryl Streep hefur samkvæmt kvikmyndavefnum imdb.com verið tilnefnd til 82 verðlauna fyrir kvikmyndaleik, þar af 22 til Golden Globe. Ferill hennar í Hollywood er því einstakur og verður eflaust seint eða aldrei leikinn eftir. Og ef til vill lýsti Jack Nicholson henni best þegar AFI, bandaríska kvikmyndastofnunin, heiðraði hana fyrir nokkru. „Þú ert einfaldlega fullkomin.“- fgg
Mest lesið „Maður getur ekki falið sig á sama hátt þegar allt hárið er farið“ Lífið Jón Viðar fellir dóm yfir Ódysseifskviðu án þess að sjá hana Menning Einar Örn og Birna selja einbýlishúsið Lífið Gagnrýni á John Snorra ómálefnaleg og slitin úr öllu samhengi Lífið Ekki ósanngjarnt gagnvart sjálfri sér heldur börnunum Lífið Krakkatía vikunnar: Rottur, froða og þyrnihrós Lífið Vilja láta svipta ekkju leikarans yfirráðum yfir dánarbúinu Lífið Fréttatía vikunnar: Infantino, hvítt efni og svikahrina Lífið Emma Roberts gengin í það heilaga Lífið Upplýsingafulltrúar sem flúðu fréttirnar Lífið Fleiri fréttir Emma Roberts gengin í það heilaga „Maður getur ekki falið sig á sama hátt þegar allt hárið er farið“ Krakkatía vikunnar: Rottur, froða og þyrnihrós Einar Örn og Birna selja einbýlishúsið Ekki ósanngjarnt gagnvart sjálfri sér heldur börnunum Vilja láta svipta ekkju leikarans yfirráðum yfir dánarbúinu Gagnrýni á John Snorra ómálefnaleg og slitin úr öllu samhengi Fréttatía vikunnar: Infantino, hvítt efni og svikahrina Diddy í einangrun eftir slagsmál við samfanga Chris Brown játaði ofbeldisfulla hegðun Afþakkaði milljón Bandaríkjadala fyrir eitt uppistand Upplýsingafulltrúar sem flúðu fréttirnar Fyrrverandi mágkonur selja til að kaupa „draumakommúnu“ Biðst afsökunar á óviðeigandi sketsi með sautján ára Stodden „La La Höndin“ úr sögunni Úlfar dauðvona en líður ljómandi vel Hvað veistu um… Mosfellsbæ? Olivia Rodrigo hljóp í rigningunni og keypti sér plötur Elín Hall opnar sig um brjóstaminnkunina Enn eitt barnið vill losna við Pitt-nafnið „Svo setti hann á sig sítrusilminn og þá máttu jólin koma“ Barnastjarnan Kaylee Hottle látin „Ég ætla snemma að sofa, því ég er dauðþreyttur“ Robbie Williams útskýrir dularfulla hvíta efnið „Ríða, drepa, giftast: Steindi, Gillz og Auddi Blö?“ Spunameistarinn Alastair Campbell mærir íslenska sumarsuddann Stríðið um baðstrendur Ítalíu Stóra Tartaría: Heimsveldið sem hvarf og leðjuflóðið mikla Stjörnurnar skinu skært í stúkunni Stjörnulífið: Dorrit smókaði með Phoebe Sjá meira