Innlent

Hvetur Kínverja til þess að viðurkenna fjöldamorð

Utanríkisráðherra Bandaríkjanna, Hillary Clinton, þrýsti á kínversk stjórnvöld að viðurkenna fjöldamorðin á Torgi hins himneska friðar árið 1989. Í ræðu sinni sagði hún einnig að kínversk yfirvöld ættu að sleppa þeim sem eru enn í haldi eftir mótmælin og hætta að ofsækja þá sem yfirvöld gruna að hafa tekið þátt í mótmælunum eða þeim tengdum.

Ræða Hillary þykir sæta tíðindum fyrir mannréttindasinna en áður hefur hún sagt að stefna Kínverja í mannréttindamálum ætti ekki að hafa áhrif í samskiptum stórveldanna.

Nú virðist ný stefna hafa verið sett á oddinn fyrir Obama-stjórnina.

Gríðarleg öryggisgæsla er í kringum torgið vegna tuttugu ára afmælis mótmælanna. Fjöldi manna sem tengdust mótmælunum á einhvern hátt á sínum tíma, eða misstu einhver nákomin, er bannað að fara á torgið. Þá er fylgst sérstaklega með Facebook notkun kínverskra þegna og bloggum hefur verið lokað.

Álitsgjafar víðsvegar í hinum vestræna heimi eru ekki bjartsýnir á að kínversk yfirvöld taki vel í bón Hillarys.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×