Íslenskur eldisfiskur til Evrópu 12. janúar 2009 02:45 50 tonnum af eldisþorski var slátrað og flutt á markaði í Evrópu. Gott verð fæst fyrir fiskinn nú um stundir. fréttablaðið/vilhelm
HB Grandi hefur flutt út 50 tonn af eldisþorski til Evrópu. Fiskurinn kemur úr tilraunaeldi fyrirtækisins í Berufirði og hefur verið tvö ár í sjó. Um hágæðahráefni er að ræða segir Eggert Benedikt Guðmundsson, forstjóri fyrirtækisins. Fiskurinn er blóðgaður strax eftir slátrun á Berufirði og ísaður í kör og fluttur til Akraness þar sem hann er unninn. Þar er hann flakaður og hnakkastykkið síðan tekið úr honum. „Það er besti bitinn og við fljúgum með hann til Evrópu. Þetta er mjög góð vara,“ segir Eggert. Um tilraunaverkefni er að ræða og hefur það gengið mjög vel. „Það er ýmislegt sem þarf að rannsaka; hve góð nýtingin er, gæðin – hvort los er í holdinu og þess háttar – og svo hvernig best er að haga vinnsluferlinu; hve langur tími líður frá blóðgun til vinnslu. Svo þarf að huga að arðsemisþættinum, vaxtahraða og fóðurnýtingu. Verðið er gott núna og besti tíminn til að selja þorsk í Evrópu um jól og áramót, enda stíluðum við upp á það.“ Á milli jóla og nýárs var 20 tonnum slátrað og unnin og önnur 30 strax eftir áramót. Það sem eftir er af fiskinum þegar hnakkastykkið er farið er ýmist selt ferskt eða fryst. Hluti af því fer í harðfisksvinnslu.
Mest lesið Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Innlent Icelandair og flugmenn komnir í fjölmiðlabann Innlent Tjörn, skautasvell, íbúðir og útivistarsvæði rísi á gjörbreyttu svæði Innlent Flugöryggismál að Reykjavík nýtist sem varavöllur Airbus Innlent Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Innlent Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Innlent Kynntu nýjan meirihluta í Hafnarfirði Innlent Samfylking og Sjálfstæðisflokkur í samstarf í Suðurnesjabæ Innlent „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Innlent Ari ekkert heyrt í Hildi síðan á föstudag Innlent Fleiri fréttir Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Tjörn, skautasvell, íbúðir og útivistarsvæði rísi á gjörbreyttu svæði Flugöryggismál að Reykjavík nýtist sem varavöllur Airbus Samfylking og Sjálfstæðisflokkur í samstarf í Suðurnesjabæ Icelandair og flugmenn komnir í fjölmiðlabann Kynntu nýjan meirihluta í Hafnarfirði Ferðamenn stundum slegið tvær flugur í einu höggi Nýr bæjarstjóri, morðhótanir og afar samrýmdar systur Þórður nýr bæjarstjóri Hafnarfjarðar Bein útsending: Kynna meirihlutasáttmála og nýjan bæjarstjóra Hafnarfjarðar Ari ekkert heyrt í Hildi síðan á föstudag Lögðu hald á 9mm hálfsjálfvirka skammbyssu Mikil spenna í veðurkortunum Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut og miklar tafir Taldi kosningarnar ógildar vegna ógilds kjörseðils Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Telja frumvarp um sjókvíaeldi stangast á við gildandi lög Vakta hafsvæðið með ESB-dróna frá Hornafirði Sannfærður um að finna eitthvað spennandi að gera Heiða greinir frá morðhótunum Selja húsnæðið vegna andstöðu íbúa Komu vélarvana fiskibát til hjálpar Sátt um að klára ESB-umræðu í tæka tíð Sátt á þingi um þjóðaratkvæði og beðið eftir fréttum úr borginni Bein útsending: Borgarfulltrúar kveðja „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Afbókuðu hantaveiruskipið í maí en enn væntanlegt í ágúst Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Hafi ekki hætt þrátt fyrir ítrekuð högg frá konunni Matvælastofnun kærir hótanir til lögreglu Sjá meira