Innlent

Arðgreiðslur í stað tekna skattavandamál

Birkir Jón Jónsson
Birkir Jón Jónsson

„Í ljósi breytinga í þjóðfélaginu þarf að taka skattalöggjöfina til gagngerrar endurskoðunar,“ segir Birkir Jón Jónsson, fulltrúi Framsóknarflokks í efnahags- og skattanefnd. „Þá þarf að gæta meira jafnræðis milli þeirra sem reka einkahlutafélög og fá tekjur í gegnum arðgreiðslur og almennra launamanna.“ Hann segir fulla ástæðu til að endurskoða skattkerfið, þannig að það verði einfalt, en tekið sé tillit til aðstæðna fjölskyldna.

Í Fréttablaðinu fyrir skömmu birtist grein eftir Svein Jónsson, fyrrum löggiltan endurskoðanda, þar sem hann lýsir efasemdum sínum á skattalagabreytingum sem gerðar voru 2001, þegar tekjuskattur á hlutafélög og einkahlutafélög var lækkaður í 18 prósent. Þessi skattur var svo lækkaður í 15 prósent í vor.

Sveinn segir í grein sinni að hann fái ekki séð „hvernig náðst getur samstaða og samhugur með þjóðinni ef ekki verður tekið á því misrétti,“ sem hann telur upp í greininni. Annars vegar að tekjuháir einstaklingar geti lækkað skatta sína með því að greiða sér arð í stað launa. Hins vegar að sveitarfélög verði af útsvarstekjum.

Gunnar Svavarsson, sem situr fyrir Samfylkingu í efnahags- og skattanefnd, segir rétt að skoða skattalöggjöfina „í því ljósi að tekjuskattur einstaklinga var að hækka en tekjuskattur hlutafélaga var að lækka“. Sérstaklega telur hann að þurfi að endurskoða tekjuskiptingu ríkis og sveitarfélaga og telur að vaxandi skilningur sé fyrir því á Alþingi.

Bjarni Benediktsson, fulltrúi Sjálfstæðisflokks í efnahags- og skattanefnd, og Katrín Jakobsdóttir, fulltrúi Vinstri grænna, eru sammála um að við núverandi aðstæður sé ekki rétt að hækka skatt á fyrirtæki. „Vandinn snýst um þá sem koma sér undan að greiða það sem með réttu ætti að falla undir tekjuskatt,“ segir Bjarni.

„Við höfum mælt fyrir því að tekinn yrði upp hátekjuskattur, hækkun á fjármagnstekjuskatti og að þeir sem hafa fjármagnstekjur greiði sér laun og þar af leiðandi tekjuskatt og útsvar,“ segir Katrín. Hvað varðar breytingar á skattkerfinu segir hún að ástæða sé til að skoða réttlátari dreifingu á skattbyrðinni.

Gunnar Svavarsson
Bjarni Benediktsson


Katrín Jakobsdóttir
Ríkisstjórnin kynnir fjárlagafrumvarpið 2009 Frá og með 1. janúar hækkuðu tekjuskattar um eitt prósentustig.Fréttablaðið/GVA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×