Syngur í Háskólabíói í febrúar 25. nóvember 2009 02:00 emilíana torrini Emilíana heldur tónleika í Háskólabíói laugardaginn 20. febrúar.fréttablaðið/gva
Emilíana Torrini heldur tónleika með hljómsveit sinni í Háskólabíói laugardaginn 20. febrúar. Hún hélt tvenna tónleika í Háskólabíói í desember í fyrra til að kynna plötu sína Me and Armini og seldist upp á þá báða. Síðan þá hefur frægðarsól hennar risið hratt, sérstaklega vegna hins vinsæla Jungle Drum sem sat á toppi þýska vinsældalistans í margar vikur. Emilíana er búin að vera á stanslausu tónleikaferðalagi um Evrópu og Ameríku á þessu ári með hljómsveit sinni og stöðugt verið að bæta við áhorfendafjöldann. Sökum mikilla anna hjá Emilíönu var búið að slá það út af borðinu að hún héldi aftur tónleika hér á landi í bráð en hún bjó til tíma og tónleikarnir í febrúar eru því orðnir að veruleika. Þess má geta að á Íslandi hefur Me and Armini selst í rúmlega tíu þúsund eintökum og forveri hennar Fisherman‘s Woman í rúmlega fimmtán þúsund eintökum. Úti í heimi hefur Me and Armini selst gríðarvel, í 250 til 300 þúsund eintökum, og Jungle Drum-smáskífan hefur selst í um fimmtíu þúsund eintökum. Fyrri plötur Emilíönu hafa einnig selst vel erlendis. Fisherman‘s Woman hefur selst í um 150 þúsundum og Love in the Time of Silence í um 200 þúsund eintökum. Samanlagt hafa breiðskífur hennar þrjár því selst í yfir 600 þúsund eintökum. Áður en Emilíana kemur hingað til lands fer hún í tónleikaferðalag um Ástralíu um jólin og fer síðan til Japans um miðjan janúar. Forsala á tónleikana í Háskólabíói hefst á fimmtudaginn kl. 10.00 á Midi.is og á afgreiðslustöðum Midi.is.
Mest lesið Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Eitt myndband selji upp heilu lagerana Menning Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Ólafur Darri herjar á ringlaðan Jamie Dornan Bíó og sjónvarp Engin stereótýpa: „Það breyttist allt þegar ég var í fimmta eða sjötta bekk“ Áskorun Efna til söfnunar í minningu Hennings Lífið Stiklusúpa: Sturlað leikjahaust og vetur í vændum Leikjavísir Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Fleiri fréttir Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Ocasio-Cortez á lausu Frægustu mágar landsins Office-stjarna með ólæknandi krabbamein Sjá meira