Innlent

Sendiherrann kallaður heim

Sendiherra Kína á Íslandi, Zhang Keyuan, hefur verið kallaður heim. Ekki fengust skýringar á því athæfi kínverskra stjórnvalda í gærkvöldi en sendiherrann hefur starfað hér í tæp tvö ár.

Sendiherrann gekk í gærmorgun á fund ráðuneytisstjóra utanríkisráðuneytisins og kom á framfæri óánægju kínverskra stjórnvalda og sendiráðsins með fundi íslenskra ráðamanna með Dalai Lama, leiðtoga Tíbeta.

Koma Dalai Lama til landsins hefur vakið spennu og óróa innan íslenska stjórnkerfisins. Kínverjar mótmæla jafnan harðlega ef erlendir ráðamenn hitta Dalai Lama að máli. Heimildir Fréttablaðsins herma að stjórnvöld hafi í raun verið hálf ráðalaus vegna komu hans og vart vitað í hvorn fótinn þau ættu að stíga. Einn heimildarmaður orðaði það svo að komur erlendra gesta væru alla jafna þægilegri við að eiga.

Fjórir íslenskir ráðherrar hittu Dalai Lama í gær og fyrradag:Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra og Ögmundur Jónasson heilbrigðisráðherra á stuttum fundi í gær og Árni Páll Árnason félagsmálaráðherra og Svandís Svavars­dóttir umhverfisráðherra við trúar­samkomu í Hallgrímskirkju á mánudag.

Þá hitti hann dágóðan hóp alþingismanna í gær, meðal annars forseta Alþingis og nefndarmenn í utanríkismálanefnd.

Hvorki forsætis- né utanríkisráðherra hittu Dalai Lama. Utanríkisráðherra er á Möltu en ekki fengust skýringar á hvers vegna forsætisráðherra hitti hann ekki. Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra sagði eftir ríkisstjórnarfund í gærmorgun að forsætisráðherra væri úti á landi.

Sjálfur taldi hann Dalai Lama eiga við sig lítið erindi enda hefði hann varla áhuga á íslenskum efnahagsmálum.

Ólafur Ragnar Grímsson er viðstaddur Smáþjóðaleikana sem settir voru á Kýpur á mánudagskvöld. Hann hélt utan á sunnudag - sama dag og Dalai Lama kom til landsins - en daginn áður átti hann fund með fyrrverandi sendiherra Kína á Íslandi.

Samkvæmt upplýsingum forsetaritara réð tilviljun réði því að forsetinn fundaði með sendiherranum fyrrverandi um það bil sem Dalai Lama kom til landsins og var ekki rætt um málefni Tíbets á fundi þeirra.

- bþs /




Fleiri fréttir

Sjá meira


×