Innlent

Glitnir eignast ráðandi hlut

„Boðað verður til hluthafafundar og það er ráðgert að hann verði núna á fimmtudag kl. 16," segir Benedikt Árnason, forstjóri Aska Capital. Hann segir þó að þurft gæti að fresta honum til mánudags.

Á hluthafafundinum verður tilkynnt að Glitnir fái 52 prósenta hlut í félaginu og gömlu hluthafarnir færi hlutafé sitt niður í núll.

„Að því loknu er hægt að boða til aðalfundar og skipt verður um stjórn strax í kjölfarið," segir Benedikt. Hann telur líklegt að Glitnir skipi meirihluta í stjórn. - vsp




Fleiri fréttir

Sjá meira


×