Innlent

Sjálfsvígum ekki fjölgað hér á landi

Matthías Halldórsson landlæknir.
Matthías Halldórsson landlæknir.
Undanfarin ár hafa sjálfsvíg verið um 30 talsins. Árið 2005 voru þau 24 talsins, 32 árið 2006, 37 árið 2007 og 28 árið 2008. Á síðustu 4 mánuðum eru aðeins skráð 5 tilvik, sem er talsvert minna en á sama tímabili á undanförnum árum. Samkvæmt óstaðfestum tölum frá slysadeild Landspítala ber ekki heldur á fjölgun sjáfsvígstilrauna síðustu mánuðina.

Þetta kemur fram í máli Matthíasar Halldórssonar landlæknis á heimasíðu Landlæknisembættisins. Þá segir að rétt þyki að koma þessu á framfæri vegna orðróms um hið gagnstæða.

„Einnig má nefna að innlögnum á geðdeild Landspítala hefur heldur fækkað og engin sjáanleg aukning er á notkun geðlyfja samkvæmt skráningu í lyfjagagnagrunni Landlæknisembættisins."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×