Innlent

Hollendingar mála bæinn appelsínugulan í júní

Hollenskir áhangendur eru þekktir fyrir að setja svip sinn á leiki landsliðsins.
Hollenskir áhangendur eru þekktir fyrir að setja svip sinn á leiki landsliðsins. MYNDIR/Getty

Mikill áhugi er í Hollandi á landsleik Íslands og Hollands í undankeppni heimsmeistarakeppninnar í fótbolta sem leikinn verður á Laugardalsvellinum laugardaginn 6. júní. Í tilkynningu frá Icelandair segir að vegna áhugans ytra hafi flugfélagið bætt þremur flugum við daglega áætlun sína til Amsterdam og eru þau fullbókuð.

„Gera má ráð fyrir að á annað þúsund aðdáendur liðsins komi með Icelandair dagana fyrir leikinn og setji svip á borgina þessa helgi, en hollenskir knattspyrnuaðdáendur eru þekktir fyrir að klæðast og skreyta sig hinum skæra appelsínugula einkennislit landsliðsins."

Liðin léku fyrri leikinn í undankeppninni í Rotterdam í október síðastliðnum og þá sigurðu Hollendingar 2-0. Icelandair er aðalstuðningsaðili íslenskra knattspyrnulandsliða.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×