Vesturport á leið til Kólumbíu 20. október 2009 06:00 Hamskiptin til Kólumbíu Hamskipti Vesturports verður opnunarsýning einnar stærstu leikhúshátíðar heims sem fram fer í Bógóta í Kólumbíu. Fréttablaðið/Hörður
Leikhópurinn Vesturport verður með opnunarsýningu einnar stærstu leiklistahátíðar heims, Festival Iberoamericano, sem hefst í Kólumbíu í mars á næsta ári. Hamskiptin eftir Franz Kafka urðu fyrir valinu en tuttugu manna hópur frá Íslandi mun fara til Bógóta og taka þátt í uppfærslunni. Aðstandendur hátíðarinnar höfðu einnig falast eftir því að hópurinn myndi setja upp og sýna Rómeó og Júlíu en það var ekki hægt vegna anna leikara í þeirri sýningu. Bæði Björn Hlynur Haraldsson og Ingvar E. Sigurðsson voru til að mynda bókaðir í frumsýningu Þjóðleikhússins á sama tíma. „Skipuleggjendurnir komu til Suður-Karólínu þegar við Nína Dögg vorum að sýna Don John. Þar komu þeir auga á nafn Vesturports í sýningarskránni, könnuðustu vel við nafnið og vildu fá okkur á þessa hátíð," segir Gísli Örn þegar Fréttablaðið truflaði hann í tökum á kvikmyndinni Órói sem nú fara fram. Gísla þykir þetta ákaflega spennandi verkefni, að fara til Kólumbíu og setja þar upp leiksýningu þótt orðspor landsins hafi verið plagað af mannránum, eiturlyfjasölu og hálfgerðu stríðsástandi í fjölmiðlum. Vesturport getur þó huggað sig við þá staðreynd að borgaryfirvöld í Bógóta hafa tekið til hendinni og borgin er nú talin vera öruggari en bæði Caracas og Ríó de Janeiró. „Mér skilst að Bógóta sé undirlögð af hátíðinni á þessum tíma, allt verði stopp og íbúarnir taki þátt í þessu af fullum krafti, þetta ætti því að vera mikið stuð."- fgg
Mest lesið Hætt saman en ennþá vinir Lífið Þreföld útgáfa Drake: „Þessi gaur er stærsti rappari allra tíma“ Tónlist Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lífið Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Lífið Enginn venjulegur sjötugur maður Gagnrýni Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Lífið Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lífið Talay Riley stunginn til bana í Lundúnum Tónlist „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Lífið Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Lífið Fleiri fréttir Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir „Aldrei of seint að gera hlutina“ „Þetta skiptir okkur mjög miklu máli“ Einmanalegt áhugamál fjögurra íslenskra stráka Krónprinsessan inn og út af sjúkrahúsi „Við höfum oftar en einu sinni fundið hann í fjöru“ „Núna stjórna stelpur landinu og strákar klippa hár“ Uppgötvuð á götum Barcelona Hvað veistu um... Snæfellsnes? Sjá meira